Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Það getur ýmislegt gerst í kvöld
8. apríl 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar
Dramatíkin allsráðandi í lokaumferðinni í dag
Það ræðst í kvöld hvort það verður Akureyri eða FH sem komast í 4 liða úrslit Íslandsmóts karla. Akureyri leikur við Hauka í Hafnarfirðinum og þarf nauðsynlega að sigra til að tryggja sig áfram og ekki síður til að sanna fyrir stuðningsmönnum og sjálfum sér að liðið eigi erindi í úrslitakeppnina eftir slakt gengi í síðustu fjórum leikjum.
Síðasta umferð N1 deildarinnar er sem sé í kvöld og hefjast allir leikirnir klukkan 19:30. Í raun hafa allir leikirnir mikla þýðingu, eins og áður segir þarf Akureyri að sigra til að vera öruggt í topp fjóra. FH sækir HK heim og þarf stig út úr leiknum til að komast áfram ef Akureyri vinnur ekki Haukana.
HK sem er öruggt gæti hinsvegar fallið úr 3. sæti niður í það 4. ef þeir tapa fyrir FH og Akureyri vinnur Haukana.
Grótta, sem leikur við Val, þarf stig til að tryggja sæti í deildinni á næsta ári.
Leikur Stjörnunnar og Fram getur orðið mjög afdrifaríkur. Liðið sem tapar fellur úr deildinni og sömuleiðis fellur Stjarnan á jafntefli. Fram á möguleika á að tryggja sæti í deildinni en þá þarf Grótta líka að tapa fyrir Val.
En augu okkar beinast fyrst og fremst að leik Hauka og Akureyrar. Hörður Flóki er í leikbanni og þar af leiðandi ekki með. Hreinn Hauksson nefbrotnaði í síðasta leik og er væntanlega ekki í hópnum í dag. Spurning um Hörð Fannar Sigþórsson en hann missti af HK leiknum vegna ökklameiðsla.
SportTV ætlar ekki að sýna frá leik Hauka og Akureyrar en við erum að skoða hvort við eigum möguleika á að bjóða upp á textalýsingu. Fylgist með hér á síðunni seinna í dag hvort það tekst.
Staðan í deildarkeppni karla
Nr.
Félag
Leikir
U
J
T
Mörk
Hlutfall
Stig
-
1.
Haukar
20
14
2
4
518 : 480
38
30
:
10
2.
Valur
20
11
3
6
493 : 464
29
25
:
15
3.
HK
20
11
2
7
535 : 513
22
24
:
16
4.
Akureyri
20
10
2
8
533 : 509
24
22
:
18
5.
FH
20
10
1
9
552 : 537
15
21
:
19
6.
Grótta
20
7
0
13
503 : 533
-30
14
:
26
7.
Fram
20
6
1
13
529 : 557
-28
13
:
27
8.
Stjarnan
20
5
1
14
475 : 545
-70
11
:
29
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson