Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Árni skoraði tíu mörk í kvöld
8. apríl 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar
Sigur á Haukum og 3. sæti N1 deildarinnar er tryggt
Akureyri gerði það í kvöld sem trúlega fáir reiknuðu með og sýndi loks sitt rétta andlit að nýju með því að leggja deildarmeistara Hauka á þeirra eigin heimavelli og tryggðu sér sæti í 4 liða úrslitum Íslandsmótsins.
Eftir jafnar upphafsmínútur virtist sem Haukar ætluðu að stinga af í leiknum, breyttu stöðunni úr 3-3 í 8-3 og 9-4. Næstu tvö mörk komu frá Akureyri en þá komu aftur fimm Haukamörk í röð og staðan orðin afleit 14-6 og ekki bætti úr skák að á sama tíma var FH komið með vænlega stöðu gegn HK og Akureyri þar með úr leik í slagnum um sæti í úrslitakeppninni.
Þessi átta marka munur hélst upp í stöðuna 16-8 en Akureyri skoraði tvö mörk á síðustu 20 sekúndum fyrri hálfleiks og því „aðeins“ sex marka munur í hálfleik 16-10.
Eins og þessi lýsing ber með sér var útlitið dökkt, FH tveim mörkum yfir gegn HK þannig að ljóst var að seinni hálfleikur yrði barátta upp á líf og dauða.
Og þvílíkur viðsnúningur, menn mættu tvíefldir til leiks og Jónatan Magnússon fór hamförum, skoraði hvert markið á fætur öðru og eftir átta mínútna leik jafnaði hann leikinn í 20-20. Árni Sigtryggsson komst sömuleiðis í ham og dældi inn mörkum í framhaldinu þannig að á næstu tíu mínútum var Akueryri komið með þriggja marka forystu, 25-28 og þar með gátu menn hætt að spá í stöðuna hjá FH og HK.
Haukarnir náðu að minnka muninn í eitt mark í stöðunni 28-27 en þar með var Akureyringum nóg boðið og þeir kláruðu lokakaflann af öryggi og fóru með fjögurra marka sigur, 30-34.
Þjálfarinn, Rúnar Sigtryggsson tók drjúgan þátt í varnarleiknum og skundaði í sóknina einnig og skoraði tvö mikilvæg mörk, trúlega mark leiksins þegar hann klíndi boltanum í samskeytin um leið og fyrri hálfleikur rann út.
Markaskorunin var annars sem hér segir: Árni Sigtryggsson 10, Jónatan Magnússon 7 (1 víti), Oddur Gretarsson 6 (1 víti), Hörður Fannar Sigtryggsson 3, Geir Guðmundsson, Heimir Árnason og Rúnar Sigtryggsson 2 mörk hver og Halldór Logi Árnason 1 mark.
Hafþór Einarsson stóð í markinu allan tímann, og varði 11 skot.
Þar sem FH sigraði HK er ljóst að Akureyri og HK eru jöfn að stigum en þar sem Akureyri hefur betur í innbyrðisviðureignum liðanna er ljóst að Akureyri endar í 3. Sæti en HK í því fjórða.
Sætum sigri fagnað í kvöld. Hreinn með glæsilega brynju!
Mynd: Hilmar Þór - Sport.is
Á sport.is er hægt að
skoða fleiri myndir Hilmars Þórs
frá leiknum og lesa umfjöllun Snorra Sturlusonar.
Andstæðingar Akureyrar í 4 liða úrslitunum verða því Valsmenn og kemst það lið sem fyrr vinnur tvo leiki í úrslitarimmuna gegn sigurvegaranum í viðureignum Hauka og HK.
Lokastaðan í deildinni er því þannig
Nr.
Félag
Leikir
U
J
T
Mörk
Hlutfall
Stig
-
1.
Haukar
21
14
2
5
548 : 514
34
30
:
12
2.
Valur
21
12
3
6
518 : 484
34
27
:
15
3.
Akureyri
21
11
2
8
567 : 539
28
24
:
18
4.
HK
21
11
2
8
557 : 538
19
24
:
18
5.
FH
21
11
1
9
577 : 559
18
23
:
19
6.
Fram
21
7
1
13
553 : 579
-26
15
:
27
7.
Grótta
21
7
0
14
523 : 558
-35
14
:
28
8.
Stjarnan
21
5
1
15
497 : 569
-72
11
:
31
Fram bjargaði sér frá falli, Grótta fer í umspil við liðin í 2.-4. sæti fyrstu deildarinnar um sæti í deildinni næsta ár en Stjarnan fellur.
Það eru hinsvegar Selfyssingar sem koma upp í úrvalsdeildina næsta ár.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson