Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Hörður Fannar og Sveinbjörn létu ekki sitt eftir liggja í kvöld



7. október 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Góður sigur á Aftureldingu og Akureyri með fullt hús stiga

Akureyri er með fullt hús stiga í N1-deild karla eftir tvær umferðir. Liðið vann góðan sigur á nýliðum Aftureldingar 28-23 í Höllinni í kvöld.
Hafþór Einarsson stóð í marki Aftureldingar gegn sínu gamla félagi. Hörður Fannar Sigþórsson lék í kvöld sinn 100. leik fyrir Akureyri en hann er leikjahæsti leikmaður félagsins frá upphafi.


Hannes Karlsson færði Herði Fannari viðurkenningu fyrir 100 leikja áfangann

Hér á eftir er stuðst við umfjöllun Hjalta Þórs Hreinssonar um leikinn sem birtist á visir.is.

Gestirnir byrjuðu vel og komust í 1-3 og 2-4 en Akureyri komst betur og betur inn í leikinn. Það komst í 7-5 en staðan var svo 9-9. Þá fór að síga á milli eftir að Akureyri breytti um vörn, fór úr 6-0 í 5-1.

Akureyri var þá 10-9 yfir en komst í 13-10 en hálfleikstölur voru 15-12. Bæði lið voru oft á tíðum kærulaus í sóknaraðgerðum sínum.
Bjarni Fritzson skoraði sjö mörk fyrir Akureyri í fyrri hálfleik, fjögur úr vítum. Eftir að liðið breytti um vörn náði það að keyra upp hraðann sem er einn helsti styrkur þess. Með Odd og Bjarna í hraðaupphlaupum er liðið ógnvænlega hratt en það skoraði þó aðeins þrjú mörk úr hraðaupphlaupum í fyrri hálfleik.


Oddur Gretarsson átti fínan leik í kvöld

Bjarni Aron Þórðarson er augljóslega sterkur leikmaður, en kannski helst til villtur. Með smá slípun getur hann náð langt. Hann er mjög sterkur og með góðar hreyfingar. Hann skoraði þó til að mynda aðeins tvö mörk úr tíu skotum í fyrri hálfleik. Hann stóð sig vel í vörninni.
Akureyringar héldu áfram á sömu braut í upphafi seinni hálfleiks og keyrðu yfir Mosfellinga. Þeir komust í 21-13 áður en gestirnir skoruðu fjögur mörk í röð. Hafþór kom aftur í markið hjá þeim og var góður. Brodd vantaði þó í sóknina og Akureyri hélt forystu sinni.

Gestirnir breyttu stöðunni úr 23-17 í 24-21 og voru með boltann en þá varði Sveinbjörn og Akureyri skoraði á ný. Eftir það var eftirleikurinn auðveldur fyrir Akureyri sem vann að lokum fimm marka sigur.

Lið Akureyrar spilaði ágætan handbolta en það náði ekki að keyra upp hraðann á nógu löngum köflum. Gegn HK keyrði það yfir andstæðinginn og kláraði leikinn en í kvöld hleypti það Aftureldingu nálægt sér. Það er gömul saga á Akureyri en nú er nýr þjálfari í brúnni, þetta er eitthvað sem liðið má ekki taka upp aftur.

Sveinbjörn Pétursson var góður í markinu en Uxinn, Stefán Guðnason, kom ekkert við sögu við litla hrifningu áhorfenda sem hreinlega elska hinn stóra og stæðilega markmann.

Bjarni var góður og manna bestur í kvöld. Oddur var einnig sterkur og Hörður Fannar líka. Sveinbjörn varði vel í markinu.

Lið Aftureldingar er óslípað og það skortir reynslu en í því eru nokkrir góðir leikmenn. Bjarni er sterkur og þá var Eyþór Vestmann ágætur. Arnar Theodórsson var þó bestur.

Mörk Akureyrar (skot): Bjarni Fritzson 9/4 (12/5), Guðmundur Hólmar Helgason 5 (11), Oddur Gretarsson 5 (11), Geir Guðmundsson 4 (5), Hörður Fannar Sigþórsson 3 (4), Heimir Örn Árnason 2 (4).

Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 16/2 (39/5, 41%).
Hraðaupphlaup: 5 (Heimir 2, Oddur, Bjarni, Hörður,).
Fiskuð víti: 5 (Guðmundur 2, Heimir, Oddur, Hörður).
Utan vallar: 14 mínútur.

Mörk Aftureldingar (skot): Arnar Theódórsson 5 (8/1), Ásgeir Jónsson 4 (4), Eyþór Vestmann 3 (13), Bjarni Aron Þórðarson 3 (16), Jón Andri Helgason 2 (2), Reynir Árnason 2 (2), Þorlákur Sigurjónsson 2 (3), Fannar Rúnarsson 1 (1), Jóhann Jóhannsson 1/1 (7/3).
Varin skot: Hafþór Einarsson 12 (31, 39%), Smári Guðfinnsson 2 (11/1, 18%).
Hraðaupphlaup: 6 (Ásgeir 2, Eyþór, Jón, Þorlákur, Fannar).
Fiskuð víti: 3 (Jóhann 2, Bjarni).
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Gísli Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson.

Í lok leiksins voru kynntir bestu menn hvors liðs en sérstök dómnefnd sá um valið. Í liði Aftureldingar var Hafþór Einarsson valinn bestur. En Oddur Gretarsson í liði Akureyrar. Þeir fengu báðir matarkörfu frá Norðlenska að launum.


Hafþór með verðlaunin sín


Oddur Gretarsson tók við sínum verðlaunum fyrir leikinn

Eftir leiki kvöldsins er staðan í deildarkeppni karla þannig
Nr. FélagLeikir U J TMörkHlutfallStig-
1. Akureyri220069 : 52174:0
2. FH110034 : 2592:0
3. Haukar110030 : 2642:0
4. Fram210162 : 6022:2
5. Selfoss210159 : 63-42:2
6. HK210162 : 70-82:2
7. Valur200256 : 62-60:4
8. Afturelding200248 : 62-140:4
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson