Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá neinum lesanda síðunnar að Hörður Fannar Sigþórsson lék sinn 100. leik fyrir Akureyri Handboltafélag í síðustu viku. Hörður er þar með orðinn leikjahæsti maður liðsins og þetta þýðir að Höddi setur met í hverjum einasta leik sem hann leikur framvegis.
Að sjálfsögðu er Hörður búinn að leika mikið fleiri leiki með Akureyrarliðunum því fyrir sameininguna lék hann upphaflega með Þór en skipti síðan yfir í KA.
Í tilefni þessa tímamóta sendi Þórir Tryggvason okkur tvær myndir af Hödda í leik með Þór.
Frá leik Þór gegn Fram 18. desember 2002. Hörður Fannar skoraði sex mörk í leiknum sem Fram vann reyndar 26-30. Það er enginn annar en Guðlaugur Arnarsson sem er hér í Fram búningnum og horfir á eftir Hödda svífa inn af línunni. Leikmaður Þórs númer 26 er að öllum líkindum Bergþór Morthens.
Þessi mynd af Hödda er trúlega einnig tekin á tímabilinu 2002-2003 en ekki er gott að segja gegn hvaða liði er hér spilað.
Einnig fylgja hér nokkrar myndir Þóris af Hödda í leik með KA.
Gegn Val og Steaua Bukarest 2005-2006
Hörður skorar og fagnar gegn Aftureldingu 2005-2006
Hörður og Rúnar fengu báðir rautt spjald í hörkuleik KA og Þórs 2005-2006 og horfðu saman á seinni part leiksins.