Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Andri, Árni og Jónatan standa í ströngu með sínum liðum





15. október 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Andri Snær orðinn leikfær á ný - spilar í dag

Andri Snær Stefánsson sem leikur með danska 1. deildarliðinu Odder Håndboldt er mættur í slaginn á ný eftir fjögurra vikna stopp vegna meiðsla. Odder liðið hefur byrjað leiktíðina afar vel og er efst í deildinni eftir fimm umferðir með 9 stig. Andri missti af síðustu þrem leikjum en er í leikmannahópnum í dag þegar Odder mætir Skive fH á útivelli klukkan 18:00 að íslenskum tíma. Andri kvaðst vera himinlifandi að vera kominn í slaginn aftur og fullur tilhlökkunar. Odder liðið hefur verið afar óheppið með meiðsli það sem af er tímabilinu og því athyglisvert hve vel hefur gengið þrátt fyrir það.

Leikurinn í dag er erfiður því Skive hefur varla tapað leik á heimavelli síðastliðin tvö ár en á móti kemur að í fyrsta sinn á tímabilinu er Odder liðið með alla sína leikmenn heila og klára í slaginn.

Samkvæmt heimildum verður Hbold.dk með beina texalýsingu frá leiknum og er áhugasömum bent á að smella hér til að fylgjast með Athugið að síðan hjá þeim endurnýjast ekki sjálfkrafa heldur þarf stöðugt að endurnýja (refresh) t.d. með því að halda niðri CTRL og ýta á F5 hnappinn!. Það verður fróðlegt að sjá hvernig danskar textalýsingar fara fram.

Annars er það helst af okkar mönnum í útlandinu að frétta að Árni Þór Sigtryggsson átti fínan leik með Rheinland (Dormagen) þegar liðið tapaði naumlega á útivelli gegn Rhein-Neckar Löwen 31-28. Árni skoraði tvö mörk en fékk góða dóma fyrir sinn leik. Liðinu hefur reyndar ekki gengið sem skyldi og er í þriðja neðsta sæti deildarinnar með 2 stig eftir sjö leiki.

Í Noregi er allt í miklum rólegheitum. Jónatan Magnússon og félagar í Kristiansund eru bara búnir að spila tvo leiki í 2. deildinni en unnu þá báða með fáheyrðum yfirburðum, 10-27 og síðan 15-42. Jónatan var markahæstur í seinni leiknum með 11 mörk úr 12 skotum.

Á sunnudaginn fá Jonni og félagar hinsvegar verðugt verkefni en þá mæta þeir liðinu NTNUI sem er efst í deildinni, með fullt hús eftir þrjá leiki.

Við minnum á að hægt er að fylgjast með stöðu og úrslitum leikja í danska, þýska og norska handboltanum hér á heimasíðunni.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson