Glæsilegt lið hér á ferðinni
| | 31. október 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarAkureyri Handboltafélag - Liðsmynd 2010-11Okkur hefur lengi vantað góða hópmynd af liði Akureyrar Handboltafélags. Leikmenn létu verða af því nú á dögunum að stilla sér upp í keppnisbúningunum fyrir slíka hópmyndatöku. Þórir Tryggvason kom á æfingu þann 12. október vopnaður myndavélinni og smellti af nokkrum myndum af hópnum. Aftasta röð: Hlynur Matthíasson, Ásgeir Jóhann Kristinsson, Hörður Fannar Sigþórsson, Stefán Guðnason, Guðlaugur Arnarsson, Guðmundur Hólmar Helgason, Þorvaldur Þorvaldsson Miðröð: Jón Heiðar Sigurðsson, Oddur Gretarsson, Halldór Logi Árnason, Geir Guðmundsson, Sævar Árnason, Atli Hilmarsson Fremsta röð: Bergvin Gíslason, Jóhann Gunnarsson, Páll Jónsson, Heimir Örn Árnason, Sveinbjörn Pétursson, Daníel Örn Einarsson, Bjarni Fritzson Ekki var látið þar við sitja heldur smellu menn sér í glæsilegan ferðagallann sem liðið klæðist einmitt á ferðalögum í leiki. Ferðagallinn er frá tískuvöruversluninni Joe‘s. Hér hafa Hannes Karlsson formaður og Hlynur Jóhannsson framkvæmdastjóri bæst í hópinn. Undir utanyfirgallanum er svo þessi líka fíni Lee bolur Menn brugðu síðan á leik og sýndu að þeir eru vel liðtækir í módelstörf ef með þarf, hér má t.d. sjá nýjasta sniðið á Lee gallabuxum og hvernig þær fara við gönguskó frá Hummel.
Hér er svo hægt að skoða safn liðsmynda í gegnum árin. |