Fyrir stórleik FH og Akureyri munu Tóti og Orri taka vel á móti öllum FHingum og stuðningsmönnum Akureyrar með eldheitum hamborgurum beint af grillinu í samstarfi við KjötKompaní og Hunt's. Einnig verða vöfflurnar hennar Rósu á kantinum fyrir þá sem vilja desert eða nægir að narta í bakkelsi um miðjan daginn.Í Krikanum verður grill, bakkelsi og brjáluð stemning þaðan sem enginn fer svangur heim. Kassakvittun frá Bónus gildir sem aðgöngumiði fyrir alla fjölskylduna.Matti draugabani töfrar fram alvöru helgarstemningu með titrandi tónaflóði. Mætum á völlinn með kassakvittun frá Bónus og skemmtum okkur saman.