Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Heimir stýrði sínum mönnum af snilld í kvöld
Gunni kynnir fór hamförum







25. nóvember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyri sigraði toppslaginn gegn HK fyrir troðfullu húsi

Það var aldeilis kyngimögnuð stemming í Íþróttahöllinni í kvöld þegar Akureyri tók á móti HK í sannkölluðum toppslag deildarinnar. Greinilegt að það var feikilegur áhugi fyrir leiknum því að stúkan var orðin kjaftfull löngu fyrir leik enda um 1300 áhorfendur á leiknum.

Við birtum hér umfjöllun Hjalta Þórs Hreinssonar, blaðamanns visir.is og Fréttablaðsins um leikinn.

Akureyri vann magnaðan sigur á HK í N1-deild karla í kvöld, 32-21. Vörn Akureyrar varði frá Daníel Berg Grétarssyni á síðustu sekúndum leiksins. Akureyri er því enn taplaust á toppnum. með fullt hús stiga.

Stemningin í Höllinni hefur ekki verið svona góð lengi. Troðfullt hús, allir klöppuðu með og umgjörðin frábær. Akureyringar eru gott fordæmi fyrir önnur félög og stemningin var mögnuð löngu fyrir leik líka. Leikmenn segja allir að það sé skemmtilegast að spila við svona aðstæður, hvort liðið sem þeir eru að spila fyrir.


Fyrri hálfleikur var hraður og skemmtilegur. Staðan var 2-2 eftir eina og hálfa mínútu en svo komst Akureyri í 6-3. HK hafði verið kærulaust í sókninni en Akureyri tók við því kefli. Liðið henti boltanum í það minnsta fimm sinnum frá sér á fyrstu fimmtán mínútunum og munar um minna.

Á móti fann Björn sig alls ekki í markinu framan af. Akureyri komst í 11-8 en HK minnkaði muninn í 13-12.

Heimamenn sigu aftur fram úr og leiddu 18-14 í hálfleik. Heimir Örn var algjörlega frábær bæði í vörn og sókn og stýrði leik liðsins virkilega vel.

Spennan í seinni hálfleik var mögnuð. HK saxaði á forskotið, jafnaði og komst loks yfir í 25-26. Þá voru um fimmtán mínútur eftir.

Sókn HK varð betri og betri en Sveinbjörn fann sig ekki á þessum kafla ólíkt svo mörgum leikjum í vetur. Stefán Guðnason átti ágæta innkomu en hinu megin varði Björn oft á mikilvægum tímapunktum.

Þegar níu mínútur voru eftir fengu Akureyringar tvisvar sinnum tvær mínútur og voru fjórir í tvær mínútur. HK komst þá tveimur mörkum yfir. Sveinbjörn varði úr hraðaupphlaupi frá Atla Ævari sem var sínum gömlu félögum mjög erfiður í kvöld og Akureyri skoraði. Staðan 28-29 og sex mínútur eftir.


Spurning á hvaða leið boltinn er?

Liðin skiptust á að skora þar til Sveinbjörn varði úr horninu og Guðmundur Hólmar jafnaði í 31-31. Þrjár mínútur eftir.

Sveinbjörn varði aftur, nú glæsilega þrumuskot frá Ólafi og Akureyri fór í sókn. Geir fiskaði víti og Bjarni skoraði. Tvær mínútur eftir og Akureyri komið aftur yfir. HK tók leikhlé.

Ólafur Bjarki skaut á markið en Sveinbjörn sýndi enn og aftur magnaða takta og varði frábærlega. Ótrúlegar vörslur undir lokin hjá Sveinbirni.

Akureyri fór í langa sókn en Guðmundur Hólmar skaut í stöngina. Tuttugu sekúndur lifðu leiks og HK átti aukakast fjórum sekúndum fyrir leikslok. Daníel Berg skaut en vörnin varði og Sveinbjörn í kjölfarið. Ótrúlegur lokasprettur og gríðarleg stemning myndaðist.


Sveinbjörn og félagar fagna mögnuðum sigri

Magnaður endir á einum besta leik deildarinnar í ár.

Heimir Örn Árnason var frábær í liði Akureyrar, sérstaklega í fyrri hálfleik. Hann var allt í öllu, lagði upp, skoraði og spilaði frábæra vörn.

Bjarki Már var sömuleiðis frábær í liði HK og bar af ásamt Atla Ævari.

Mörk Akureyrar: Heimir Örn Árnason 8, Bjarni Fritzson 7 (4 úr vítum), Guðmundur Hólmar Helgason 6, Oddur Gretarsson 4, Geir Guðmundsson 3, Hörður Fannar Sigþórsson 2 og Guðlaugur Arnarsson 2.

Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 16 skot og Stefán Guðnason 3

Hraðaupphlaup: 6 (Heimir, Guðmundur, Bjarni, Oddur 2, Guðlaugur).
Fiskuð víti: 5 (Guðlaugur, Hörður 2, Geir 2 ).
Utan vallar: 6 mínútur.

Mörk HK: Bjarki Már Elísson 12 (2 úr vítum), Atli Ævar Ingólfsson 9, Daníel Berg Grétarsson 4, Ólafur Bjarki Ragnarsson 3, Hörður Másson 2, Hákon Hermannsson 1.

Varin skot: Björn Ingi Friðþjófsson 13 þar af 1 vítakast

Hraðaupphlaup: 4 (Bjarki 3, Atli).
Fiskuð víti: 2 (Hörður, Atli).
Utan vallar: 2 mínútur.

Að vanda fengu menn leiksins úr báðum liðum viðurkenningar frá Norðlenska. Bjarki Már Elísson var útnefndur besti maður HK en Heimir Örn Árnason besti maður Akureyrar.

Þórir Tryggvason sendi okkur þessar myndir frá leiknum og margar fleiri, smelltu hér til að skoða allar myndirnar.

Staðan í deildarkeppni karla eftir átta umferðir
Nr. FélagLeikir U J TMörkHlutfallStig-
1. Akureyri8800248 : 2044416:0
2. HK8602273 : 264912:4
3. Fram8602274 : 2334112:4
4. FH8503241 : 2202110:6
5. Haukar8404206 : 215-98:8
6. Afturelding8107198 : 229-312:14
7. Selfoss8107225 : 262-372:14
8. Valur8107195 : 233-382:14


Sjá enn fleiri myndir og umfjöllun á sport.is.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson