Það verður ekkert gefið eftir í þessum leikjum
| | 26. nóvember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur: Tveir útileikir um helginaStrákarnir í 2. flokki spila í dag gegn Val og á morgun gegn Selfossi. Leikurinn gegn Val er að sjálfsögðu í Vodafonehöllinni og hefst klukkan 21:30. Fyrir þennan leik er Valur búinn að leika þrjá leiki, vinna tvo og tapa einum. Þeir unnu einmitt Selfyssinga á útivelli 30-35, unnu ÍBV sömuleiðis á útivelli 23-27 en töpuðu fyrir Stjörnunni á heimavelli með einu marki, 29-30.
Á morgun, laugardag halda strákarnir á Selfoss og hefst sá leikur klukkan 16:00. Selfyssingar eru búnir aða spila sex leiki, vinna þrjá og tapa þrem. Þeir unnu ÍBV á útivelli 19-27, unnu Hauka á útivelli 27-33 og Fram einnig á útivelli 34-35. Selfyssingar hafa hins vegar tapað fyrir FH, 28-23, töpuðu fyrir Val eins og áður segir, 30-35 og töpuðu fyrir Stjörnunni 30-36.
Akureyri er bara búið að leika tvo leiki, gegn Stjörnunni og FH hér á heimavelli og vinna þá báða. Fyrst Stjörnuna 28-22 og um síðustu helgi unnu þeir FH 26-25.
Staðan í deildinni er mjög villandi þar sem liðin hafa leikið mismarga leiki, allt frá tveim leikjum og upp í sex. Smelltu hér til að skoða stöðu og úrslit leikja hjá 2. flokki.
Við óskum strákunum góðrar ferðar og velgengni í verkefnum helgarinnar. |