Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Páll stóð fyrir sínu um helgina
29. nóvember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar
2. flokkur: Tveir góðir sigrar um helgina
Strákarnir áttu tvo útileiki um helgina, lagt var af stað suður klukkan 2 á föstudegi og stefnan sett á Hlíðarenda þar sem keppt var við Valsara klukkan 21:30.
Akureyri byrjaði mun betur og komst í 1-6 og tóku Valsmenn þá leikhlé. Eitthvað virðist ræða þjálfara þeirra hafa skilað sér því Valsarar fóru að vinna sig hægt og bítandi inn í leikinn og þegar fyrri hálfleikur var búinn var staðan 14-16 Akureyri í vil.
Í seinni hálfleik tóku Akureyringar leikinn í sínar hendur og náðu mest 11 marka forustu og uppskáru að lokum öruggan sigur
26-34
. Páll var að verja vel í markinu og Bergvin var öruggur í horninu, skoraði 9 mörk. Þá kom Oddur Gretarsson einnig sterkur af bekknum með 5 mörk. Vörnin í seinni hálfleik var mjög góð hjá Akureyri og þrátt fyrir að dómarar leiksins hafi rekið Akureyringa óspart útaf spilaði liðið vel einum færri. Alls fengu Akureyringar 8 sinnum tveggja mínútna brottrekstur, þ.a.m. fékk Jón Heiðar sína þriðju brottvísun eftir 40 mínútna leik.
Bergvin skorar í leik gegn Stjörnunni
Seinni leikur helgarinnar var á erfiðum útivelli Selfyssinga og vissu Akureyringar að þeir þyrftu að eiga toppleik til þess að sigra.
Selfoss byrjaði leikinn betur og komst í 5-2 en Akureyringar voru pollrólegir, spiluðu hörkugóða vörn og skoruðu þrjú hraðupphlaupsmörk í röð og jöfnuðu í 5-5. Akureyri náði síðan forustunni og leiddi 11-8 í hálfleik. Í seinni hálfleik héldu Akureyringar sama dampi og með flottri vörn og yfirveguðum sóknarleik uppskáru þeir að lokum 5 marka sigur
27-32
.
Akureyri leiddi allan seinni hálfleikinn með 4-6 mörkum og voru Selfyssingarnir aldrei líklegir til þess að jafna. Eins og í leiknum kvöldið áður var Páll að verja mjög vel og vörnin frábær. Hlynur og Ásgeir fastir fyrir í miðju varnarinnar og Bergvin og Jóhann tóku vel á sterkum skyttum Selfyssinga. Sóknarlega hélt liðið ró og spilaði sín kerfi sem gengu vel upp. Ólafur, Jóhann og Bergvin voru góðir í hornunum og Jón Heiðar stýrði liðinu vel af miðjunni. Jóhann, Ásgeir og Hlynur spiluðu vel fyrir utan og Halldór var að finna sig á línunni. Valþór Atli átti líka góðar innkomur á vítapunktinn og skoraði úr öllum 5 vítum Akureyrar af miklu öryggi.
Það má segja að allir í liðinu hafi spilað vel og var þetta eflaust besti leikur liðsins það sem af er tímabili en strákarnir eru með fullt hús eftir fjóra leiki.
Ólafur var öflugur í horninu líkt og hér gegn Stjörnunni
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson