Geir, Guðmundur og Oddur hafa um nóg að hugsa þessa dagana
| | 2. desember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarÞrír leikmenn Akureyrar í U-21 árs landsliðshópi ÍslandsÍ dag var tilkynntur 18 manna æfingahópur U-21 árs landsliðs karla. Geir Guðmundsson, Guðmundur Hólmar Helgason og Oddur Gretarsson eru allir í hópnum að þessu sinni. Næsta verkefni hópsins eru þrír vináttulandsleikir gegn Normönnum sem verða 18. – 20. desember næstkomandi.
Liðið tekur síðan þátt í undankeppni HM sem fram fer 7. 9. janúar en strákarnir eru í riðli með Eistlandi, Makedóníu og Serbíu. Þjálfarar landsliðsins eru Einar Guðmundsson og Einar Andri Einarsson en æfingatörn hefst 17. desember. Hópurinn er þannig skipaður: Markmenn Arnór Stefánsson, ÍR Kristófer Guðmundsson, Afturelding Sigurður Örn Arnarson, FH
Aðrir leikmenn Bjarki Már Elísson, HK Geir Guðmundsson, Akureyri Guðmundur Árni Ólafsson, Haukar Guðmundur Hólmar Helgason, Akureyri Halldór Guðjónsson, FH Heimir Óli Heimisson, Haukar Oddur Grétarsson, Akureyri Ólafur Guðmundsson, FH Ragnar Jóhannsson, Selfoss Róbert Aron Hostert, Fram Stefán Sigurmannsson, Haukar Sverrir Eyjólfsson, Eisenach Tandri Konráðsson, Stjarnan Vignir Stefánsson, ÍBV Þorgrímur Ólafsson, ÍR |