Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Halldór Logi Árnason var valinn besti leikmaður liðsins að þessu sinni
31. mars 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar
Akureyri tók við bikarnum eftir tap á heimavelli
Akureyringar tóku við deildarbikarnum í kvöld eftir tap gegn Aftureldingu, 21:24, í Höllinni á Akureyri í næstsíðustu umferð N1-deildar karla í handbolta. Hafþór Einarsson átti stjörnuleik í marki Aftureldingar og varði 26 skot. Gestirnir virtust mun hungraðari í sigur á meðan Akureyraringar virtustu vera komnir með hugann við verðlaunaafhendinguna fyrir leik. Leikurinn var ekki vel spilaður en Afturelding innbyrti tvö mikilvæg stig í botnbaráttunni.
Hér á eftir er byggt á umfjöllun Þrastar Ernis Viðarssonar blaðamanns Vikudags.
Akureyringar gerðu tvær breytingar í liði sínu í kvöld en þeir Bergvin Gíslason og Halldór Logi Árnason komu inn í byrjunarliðið fyrir þá Hörð Fannar Sigþórsson og Guðlaug Arnarsson sem báðir glíma við lítilsháttar meiðsli.
Vörn Akureyrar bar þess merki í leiknum enda hafa þeir Guðlaugur og Hörður spilað þar stóru rullu í vetur. Hvorugt liðið bauð upp á merkilegan fyrri hálfleik sem var slakur og hreinlega leiðinlegur. Bæði lið skutu illa markið og vörnin var ekki í hávegum höfð hjá hvorugu liðinu. Hafþór Einarsson átti þó fínan hálfleik í marki Aftureldingar en hann varði 9 skot gegn sínum gömlu félögum.
Akureyri komst í 3:1 og tveggja til fjögurra marka forystu fram að stöðunni 8:4 en Afturelding komst yfir 9:8 þegar sautján mínútur voru liðnar af leiknum. Sú staða entist í heilar átta mínútur en þá komst Afturelding í 8-10 og segir það sitt um sóknarleik beggja lið í fyrri hálfleik. Gestirnir komust tveimur mörkum yfir þegar skammt var til hálfleiks og héldu þeim mun út hálfleikinn.
Staðan í leikhléi, 13:11, Aftureldingu í vil.
Afturelding byrjaði fyrri hálfleikinn af krafti. Hafþór hélt áfram að verja eins og bersekur og Mosfellingar komust fjórum mörkum yfir, 16:12. Akureyringar tóku þá við sér og jöfnuðu í 16:16 um miðjan hálfleikinn. Leikurinn var í járnum næstu mínútur þar sem eitt til tvö mörk skildu liðin að en Bjarni Fritzson virtist einna helst finna leið framhjá Hafþóri í marki gestanna af sóknarmönnum Akureyrar.
Leikmenn Aftureldingar voru hins vegar sterkari á lokasprettinum og komust þremur mörkum yfir, 23:20, þegar hálf mínúta var eftir og úrslitin ráðin.
Lokatölur, 24:21 fyrir gestina. Með sigrinum komst Afturelding í umspil um áframhaldandi sæti í deildinni, þar sem Selfoss tapaði sínum leik gegn Val.
Mörk Akureyrar:
Bjarni Fritzson 8 (4 víti), Oddur Gretarsson 3 (2 víti), Guðmundur Hólmar Helgason 3, Halldór Logi Árnason 2, Daníel Einarsson 2, Heimir Örn Árnason 2, Bergvin Gíslason 1.
Varin skot:
Sveinbjörn Pétursson 13.
Mörk Aftureldingar:
Þrándur Gíslason 7, Sverrir Hermannsson 6, Reynir Ingi Árnason 3, Bjarni Aron Þórðarsson 3 (2), Jóhann Jóhannsson 2, Arnar Freyr Theódórsson 2, Ásgeir Jónsson 1.
Varin skot:
Hafþór Einarsson 26.
Þrátt fyrir tapið í kvöld tók Akureyri á móti deildarmeistaratitlinum 2011 úr hendi Einars Þorvarðarsonaf framkvæmdastjóra HSÍ.
Meistararnir kátir með bikarinn sín á milli
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson