Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Hörður Fannar átti fínan leik í kvöld og var valinn maður leiksins
8. apríl 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar
Öruggur sigur Akureyrar á Fram
Það var ljóst frá fyrstu mínútu leiksins að Akureyrarliðið kom afar vel stemmt í þennan leik og að menn voru staðráðnir í að enda deildarkeppnina með stæl. Heimir Örn fór fyrir sínum mönnum í upphafi og skoraði fyrstu þrjú mörk liðsins og eftir að staðan varð 3-2 fyrir Akureyri náðu Framarar aldrei að jafna.
Munurinn var 2 til 3 mörk en í stöðunni 11-9 komu þrjú Akureyrarmörk í röð og ljóst hvort liðið hafði meiri löngun til að sigra. Það fór vel á því að varnarjaxlinn Hreinn Þór Hauksson skyldi auka muninn í sex mörk í stöðunni 16-10 en Hreinn var að spila sinn fyrsta leik eftir erfið meiðsli í bikarúrslitaleiknum.
Í hálfleik var staðan 17-12 og Akureyrarliðið að spila fína vörn og hraðan sóknarleik. Oddur Gretarsson fór mikinn í fyrri hálfleik og skoraði sex mörk, þar af tvö úr vítum.
Akureyrarliðið gerði út um leikinn í upphafi seinni hálfleiks og náði fljótt átta marka forystu 22-14. Á þessum kafla fór Sveinbjörn Pétursson á kostum í markinu og liðið í fínum málum.
Fram náði einu sinni að minnka muninn niður í fimm mörk, í stöðunni 24-19 en Akureyrarliðið gaf aðeins í á ný og jók muninn jafnt og þétt sem endaði með níu marka sigri 35-26.
Hörður Fannar Sigþórsson lék mjög vel í kvöld, skoraði tvö mörk, fiskaði þrjú vítaköst og stóð vaktina vel í vörninni og var útnefndur maður leiksins.
Mörk Akureyrar:
Bjarni Fritzson 10 (5 úr víti), Oddur Gretarsson 6 (2 úr víti), Guðmundur Hólmar Helgason 6, Daníel Einarsson 6, Heimir Örn Árnason 4, Hörður Fannar Sigþórsson 2 og Hreinn Þór Hauksson 1.
Varin skot:
Sveinbjörn Pétursson 14 þar af 1 vítakast , Stefán Guðnason 2 skot varin.
Mörk Fram:
Jóhann Karl Reynisson 5, Andri Berg Haraldsson 5, Halldór Jóhann Sigfússon 4 (3 úr vítum), Arnar Birkir Hálfdánsson 4, Róbert Aron Hostert 2, Magnús Stefánsson 1, Jóhann Gunnar Einarsson 1, Hákon Stefánsson 1.
Varin skot:
Björn Viðar Björnsson 10 þar af 1 vítakast
Með þessum sigri náði Akureyri yfihöndinni í innbyrðisleikjum gegn Fram. Þar með státar Akureyraliðið af því að hafa betur gegn öllum liðunum sem léku í N1 deildinni í ár.
Eina spennan fyrir þessa lokaumferð var hver yrði í 3. sæti N1 deildarinnar og þar sem HK tapaði fyrir FH í kvöld er ljóst að HK verður í fjórða sætinu og mun því leika gegn Akureyri í úrslitakeppninni en í hinni viðureigninni eru það FH og Fram sem mætast.
Lokastaðan í deildarkeppni karla
Nr.
Félag
Leikir
U
J
T
Mörk
Hlutfall
Stig
-
1.
Akureyri
21
15
3
3
609 : 552
57
33
:
9
2.
FH
21
14
2
5
611 : 551
60
30
:
12
3.
Fram
21
11
1
9
654 : 627
27
23
:
19
4.
HK
21
11
0
10
633 : 629
4
22
:
20
5.
Haukar
21
8
4
9
541 : 548
-7
20
:
22
6.
Valur
21
10
0
11
548 : 566
-18
20
:
22
7.
Afturelding
21
5
0
16
530 : 588
-58
10
:
32
8.
Selfoss
21
3
4
14
584 : 649
-65
10
:
32
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson