Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Halldór skoraði 5 mörk í dag en það dugði skammt
7. maí 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar
2. flokkur tapaði úrslitaleiknum gegn Haukum
Nú rétt í þessu var að ljúka úrslitaleik Akureyrar og Hauka um Íslandsmeistaratitilinn í 2. flokki. Það má með sanni segja að Akureyringar hafi mætt seint til leiks og Haukar hafi allan tímann átt skilið að sigra.
Haukar náðu mest 7 marka forskoti í fyrri hálfleik, en staðan í hálfleik var 12-18. Varnarleikur Akureyrar var ekki nógu góður og markvarslan var engin, á sama tíma stóðu Haukar vörnina vel og fengu mjög góða markvörslu.
Akureyringar náðu að byrja síðari hálfleikinn af krafti og minnkuðu muninn niður í 16-19 strax eftir fjórar mínútur en þá gáfu Haukarnir bara aftur í og skoruðu þrjú mörk í röð. Munurinn hélst svo í 5-7 mörkum það sem eftir lifði leiks þangað til að um 6 mínútur voru eftir. Þá loksins kviknaði líf í okkar mönnum og þeir fóru að minnka forskot Hauka. Liðið fékk smá markvörslu og menn fengu smá trú á verkefnið. Hinsvegar kom þessi kafli bara of seint og Haukar fögnuðu sigri 31-33.
2. flokkur Akureyrar þarf því að sætta sig við silfrið fjórða árið í röð, sem er vissulega frábær árangur þó erfitt sé að sætta sig við tap í úrslitaleik.
Halldór Örn Tryggvason, Ólafur Magnússon, Guðmundur Hólmar Helgason og Bergvin Gíslason skoruðu allir 5 mörk í dag. Markmenn Akureyrar vörðu samtals 10 skot, þar af 4 á síðustu mínútum leiksins.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson