Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Frammistaða Sveinbjörns dugði ekki í kvöld
14. nóvember 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar
Þátttökunni í bikarkeppninni lokið að þessu sinni
FH-ingar unnu sannfærandi sigur á Akureyringum í stórleik 16-liða úrslita Eimskipsbikarkeppni karla í handknattleik, 34-21. FH-ingar gerðu í raun út um leikinn strax í fyrri hálfleik, höfðu forystu í hálfleik 16-9, og slógu allar endurkomutilraunir norðanmanna síðasta hálftímann niður með tiltölulega auðveldum hætti.
Hér fer á eftir umfjöllun
Snorra Sturlusonar
á sport.is um leikinn.
Leikur Íslandsmeistaranna og deildarmeistaranna var í ágætu jafnvægi á upphafsmínútunum, markverðir liðanna voru í ágætum ham, varnarleikur beggja sterkur og allt útlit fyrir jafnan og spennandi leik. Það snarbreyttist þó eftir nokkurra mínútna leik, Akureyrarliðið hrökk í baklás á meðan FH-ingar héldu sínum takti, það fáa sem lak í gegnum FH-vörnina og/eða Akureyringar höfðu dug til að koma á markið varði Daníel og norðanmönnum var algjörlega fyrirmunað að skora. Depurðin í sóknarleiknum smitaði varnarleikinn, sem FH-ingar leystu yfirleitt ljómandi vel og á köflum virtust heimamenn nánast geta skorað að vild. Ólafur Gústafsson hlóð í nokkrar sérútbúnar bombur, Örn Ingi, Hjalti og Andri léku allir vel og þá er ekki að sökum að spyrja. FH-ingar byggðu í rólegheitunum upp nokkur örugga forystu og voru komnir langleiðina með að klára leikinn strax í hálfleik, en þá var staðan 16-9 fyrir heimamenn.
Akureyringar sýndu dug og þor framan af síðari hálfleik og þá fóru menn loksins að taka af skarið, láta vaða á FH-vörnina og gera eitthvað meira en að sýna ágætlega útfærðar gabbhreyfingar. Norðanmenn hjuggu í forystu FH og rétt í þann mund sem síðari hálfleikur var að verða hálfnaður virtust þeir ætla að gera alvöru úr þessu áhlaupi. FH-ingar virkuðu hins vegar sallarólegir yfir þessu öllu saman, þeir hertu lítillega á vörninni hjá sér og slógu taktinn aftur úr leik Akureyringa með þeim árangri að þegar tæpar tíu mínútur voru til leiksloka var munurinn orðinn ellefu mörk. Sjálfstraustið lak af FH-ingum á þessum kafla, enda staðan þægileg og úrslitin nánast ráðin.
FH-ingar léku ljómandi vel í þessum leik, virtust ekki hafa miklar áhyggjur af fjarveru Baldvins Þorsteinssonar sem enn glímir við smávægileg meiðsli, og það segir sig nokkurn veginn sjálft að sigur af þessari stærðargráðu hlýtur að vera sanngjarn. FH-vélin mallaði án þess að hiksta, menn kunna sín hlutverk og sín takmörk afskaplega vel og hafa það að leiðarljósi að liðsheildin nær alla jafna lengra en einstaklingsframtakið. Akureyringar eru hins vegar í svipuðum vandræðum og þeir hafa verið síðustu misserin, hópurinn er ekkert sérlega stór og meiðsli lykilmanna setja strik í reikninginn. Nokkrir þeirra eru búnir að reima á sig handboltaskóna eftir fjarveru vegna meiðsla, en eru greinilega ekki í hundrað prósent standi og það leynir sér ekki.
Mörk FH:
Ólafur Gústafsson 9, Þorkell Magnússon 8, Örn Ingi Bjarkason 4, Halldór Guðjónsson 4, Andri Berg Haraldsson 3, Hjalti Pálmason 2, Bjarki Jónsson 2, Sigurður Ágústsson1.
Varin skot: Daníel Freyr Andrésson 22.
Mörk Akureyrar:
Bjarni Fritzson 6, Guðmundur Hólmar Helgason 6, Heimir Örn Árnason 6, Heiðar Þór Aðalsteinsson 2, Geir Guðmundsson 1.
Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 13, Stefán Guðnason 1.
Á sport.is er hægt að
skoða myndir Snorra Sturlusonar
frá leiknum.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson