Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Tími Odds mun áreiðanlega koma með landsliðinu

15. janúar 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Oddur verður væntanlega ekki í hóp gegn Króötum

Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari er búinn að tilkynna 15 af þeim sextán leikmönnum sem hann má nota í riðlakeppninni í Serbíu. Það eru Oddur Gretarsson og Rúnar Kárason sem hann heldur utan hópsins en spurningamerkið er við markvörðinn Aron Rafn Eðvarðsson úr Haukum sem hélt til Serbíu í dag til að vera til taks ef veikindi Björgvins Páls Gústavssonar leyfa ekki að hann spili.

Það kemur vissulega á óvart að Oddur skuli ekki vera valinn í hópinn því að hann átti t.d. frábæra innkomu í leiknum gegn Finnum á föstudagskvöldið með fimm mörk úr fimm skotum þær fáu mínútur sem hann fékk til að sanna sig.

Íslenska liðið má nota sextán leikmenn í riðlakeppninni en ef það kemst áfram má skipta út tveim leikmönnum. Það er óneitanlega sérkennilegt að annað stórmótið í röð virðist Guðmundur ætla að leika riðlakeppnina með aðeins einn vinstri hornamann. Það mun því mikið mæða á Guðjóni Val Sigurðssyni og þó að hann sé frábær leikmaður þá setur maður spurningamerki við þessa ákvörðun Guðmundar.

U20 ára landsliðið lék gegn Finnum á laugardag
En það eru fleiri landslið Íslands í verkefnum þessa dagana, þrír leikmenn Akureyrar Handboltafélags léku með U20 ára liðinu vináttulandsleik gegn A landsliði Finna á laugardaginn. Þetta voru Geir Guðmundsson, Guðmundur Hólmar Helgason og Ásgeir Jóhann Kristjánsson.

Eftir sveiflukenndan leik unnu Finnar þriggja marka sigur, 30-27.
Geir Guðmundsson var langatkvæðamestur íslensku strákanna með 8 mörk en næstir komu Guðmundur Hólmar og Garðar Sigurjónsson en hvor um sig skoraði 4 mörk. Samkvæmt umfjöllun Morgunblaðsins voru þeir félagar yfirburðamenn í Íslenska liðinu. Guðmundur þurfti reyndar að yfirgefa völlinn um tíma vegna meiðsla í andliti en vonandi voru þau ekki alvarleg.


Guðmundur Hólmar í leiknum gegn Finnum. Mynd: mbl.is

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson