Bergvin raðaði inn mörkum á laugardaginn
| | 30. janúar 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur: Góðir sigrar hjá báðum liðum um helginaStrákarnir í 2. flokki spiluðu tvo leiki á laugardaginn og gerðu sér lítið fyrir og unnu þá báða. Í 1. deild lék Akureyri – 1 gegn Haukum og lauk þeim leik með sjö marka sigri, 33 – 26 eftir að hafa leitt 18 – 15 í hálfleik.
Bergvin Gíslason var atkvæðamestur í markaskoruninni með 12 mörk en alls skoruðu tíu leikmenn Akureyrar – 1 í leiknum: Bergvin 12, Valþór 6, Jón Heiðar 4, Snorri 2, Jón Þór 2, Sigþór 2, Hlynur 2, Ásgeir 1, Óli 1 og Dóri 1.
Í markinu varði Páll Jónson 12 skot og Gunnar Bjarki 4 skot.
Með sigrinum höfðu liðin sætaskipti í deildinni, Akureyri - 1 fór í 3. sætið en Haukar í það 4. Akureyrarliðið á reyndar tvo leiki til góða á toppliðin.
2. deild Strákarnir í Akureyri – 2 léku sama leikinn þegar þeir tóku á móti ÍR. Eftir að hafa verið með sex marka forystu, 12 – 6 lönduðu strákarnir fimm marka sigri í lokin 24 – 19.
Markaskorun liðsins dreifðist sem hér segir: Halldór Kristinn 6, Bragi 5, Aðalsteinn 4, Vilhelmas 3, Egill 3, Hjalti 1, Bjarki Sæþórs 1 og Ágúst 1.
Í markinu varði Bjarki Sím 21 skot.
Eftir leikinn er Akureyri - 2 í 2. sæti deildarinnar en hafa reyndar spilað fleiri leiki en hin liðin.
Hér er hægt að sjá stöðu og úrslit leikja hjá 2. flokks liðunum. Staðan í 1. deild Staðan í 2. deild. |