Það var létt yfir Stefáni Guðnasyni eftir leikinn gegn Gróttu fyrr í vetur
| | 8. febrúar 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarMikilvægur útileikur gegn Gróttu á fimmtudaginn14. umferð N1 deildar karla verður leikin á fimmtudaginn og með henni lýkur öðrum hluta deildarinnar. Akureyri sækir Gróttu heim og hefst leikurinn klukkan 18:30 á Seltjarnarnesinu. Gróttumenn stóðu svo sannarlega í Fram liðinu í síðasta leik þannig að enginn skyldi halda að verkefnið verði auðvelt fyrir Akureyrarliðið.
Leikurinn er svo sannarlega mikilvægur fyrir Akureyri og nauðsynlegur í þeirri stigasöfnun sem liðið þarf á að halda. Með sigri í leiknum tryggir Akureyri sig í 5. sæti deildarinnar en tap gæti kostað að Valur næði sætinu og þar með yrði langsótt að komast í úrslitakeppnina.
Röð liðanna að lokinni næstu umferð ræður hvernig leikjaröð liðanna verður í þriðja og síðasta hluta deildarinnar. Liðin í 1. – 4. sæti fá fjóra heimaleiki og þrjá útileiki en liðin í 5. – 8. sæti fá þrjá heimaleiki og fjóra útileiki. Ef Akureyri heldur 5. sætinu í deildinni og röð liðanna breytist ekki verður leikjaplan liðsins sem hér segir:
Grótta – Akureyri * Afturelding – Akureyri * Akureyri - HK Haukar – Akureyri * Akureyri - FH Fram - Akureyri Akureyri – Valur *
Stjörnumerktu leikirnir eru öruggir (ef Akureyri heldur 5. sætinu) en röð HK, FH og Fram í deildinni gæti breyst og þar með hvort viðureignirnar við þau verða heima eða heiman.
Fyrir þá sem vilja spekulera í möguleikunum þá er uppsetningin þannig í síðustu sjö umferðunum:
1. umferð: 2 - 7, 4 - 1, 3 - 6, 8 - 5 2. umferð: 2 - 4, 1 - 6, 3 - 8, 7 - 5 3. umferð: 6 - 2, 8 - 1, 5 - 3, 4 - 7 4. umferð: 2 - 8, 4 - 6, 1 - 5, 7 - 3 5. umferð: 5 - 2, 8 - 4, 3 - 1, 6 - 7 6. umferð: 2 - 3, 4 - 5, 6 - 8, 1 - 7 7. umferð: 1 - 2, 3 - 4, 5 - 6, 7 - 8. |