Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Þá er bara að taka Svíana



5. júlí 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

U-20: Tap gegn Dönum í fyrsta leik

Ísland hóf leik í dag á Evrópumóti 20 ára landsliða karla með því að spila gegn Dönum. Leiknum lauk með sex marka tapi, 28 – 22 eftir að staðan var jöfn í hálfleik 12-12. Morgunblaðið hefur það eftir Geir Sveinssyni, þjálfara liðsins að liðið hafi leikið vel fyrstu 40 mínútur leiksins en gefið eftir á lokamínútunum.

Eftirfarandi er tekið af vef HSÍ:

Strákarnir mættu gríðalega einbeittir til leiks og spiluðu fína vörn og agaðan sóknarleik. Voru þeir alltaf á undan að skora og náðu 3ja marka forskoti þegar 5 min voru eftir af fyrri hálfleik 12-9. Ekki síst vegna frábærra takta hjá Darra í markinu. Þá misstu Íslendingar mann útaf og náðu Danir að jafna fyrir hálfleiksflaut. Staðan í hálfleik var 12-12.

Seinni hálfleikur var jafn á öllum tölum fram til á 46 mínútu en þá náðu Danir góðum kafla og Íslensku strákarnir misstu einbeitinguna. Sigu Danir þá framúr og sigruðu að lokum með 28-22. Margt gott er hægt að taka úr þessum leik, strákarnir spiluðu mjög vel í 45 mínútur, en vantaði smá aga eftir það.

Íslenska liðið fékk 4 brottvísanir og Danir 1

Mörk Íslands gerðu:
Geir Guðmundsson 7, Ísak Rafnsson 4, Leó Snær Pétursson 3, Sveinn Aron Sveinsson 3 Víglundur Þórsson 2, Magnús Óli Magnússon 1, Árni Benedikt Árnason 1 og Guðmundur Hólmar Helgason 1.
Brynjar Dari á mjög góðan leik og varði 15 bolta og Einar Ólafur var með 4 bolta
Brynjar Darri var valinn besti leikmaður Íslands.

Hér er hægt að fylgjast með á heimasíðu mótsins.

Næsti leikur Íslands er gegn Svíum á morgun.


Íslenski hópurinn, mynd af heimasíðu mótsins

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson