Sex stig komu í hús um helgina
| | 30. október 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur: þrír sigrar á Herði frá ÍsafirðiUm helgina mættust Akureyri-2 og Hörður frá Ísafirði í þrem leikjum í 2. flokki. Liðin leika í 2. deild og varð að samkomulagi að liðin mættust þrívegis hér á Akureyri og lykju þar með innbyrðis leikjum sínum í deildinni.
Fyrsti leikurinn var á föstudaginn, heimaleikur Harðar og lauk honum með fjögurra marka sigri Akureyrar, 28-32 eftir að staðan var 15-17 í hálfleik. Mörk Akueyrar skoruðu: Heimir Sigurðsson 6, Arnór Þorri Þorsteinsson 5, Ágúst Már Sigurðsson 4, Ingvi Ásgeirsson 4, Ásgeir Hinrik Gíslason 4, Atli Fannar Eðvaldsson 3, Ingvar Birgisson 3, Sölvi Andrason 2 og Grímur Sölvason 1.
Á laugardaginn var komið að tveim heimaleikjum Akureyrar, þeim fyrri lauk með sjö marka heimasigri 32-25 eftir að staðan var 16-10 í hálfleik. Markaskorun heimamanna var sem hér segir: Ingvar Birgisson 6, Ingvi Ásgeirsson 5, Sölvi Andrason 5, Heimir Sigurðsson 4, Ásgeir Hinrik Gíslason 3, Arnór Þorri Þorsteinnsson 2, Atli Fannar Eðvaldsson 2, Bragi Benediktsson 2, Ágúst Már Sigurðsson 1, Snæþór Sveinbjörnsson 1 og Svphaphat 1 mark.
Þriðja og síðasta leikinn vann Akureyri síðan örugglega 34-21 eftir að hafa leitt 21 -11 í hálfleik. Mörkin dreifðust vel á leikmenn liðsins, Svphaphat 6, Sölvi Andrason 5, Arnór Þorri Þorsteinnsson 4, Ágúst Már Sigurðsson 4, Heimir Sigurðsson 4, Ingvi Ásgeirsson 4, Atli Fannar Eðvaldsson 2, Bragi Benediktsson 2, Ingvar Birgisson 2 og Ásgeir Hinrik Gíslason 1 mark.
Strákarnir eru því komnir með 8 stig úr 6 leikjum en þeir hafa klárað sína leiki gegn Herði og ÍBV.
Hér eru myndir frá leikjunum. Lagt á ráðin í leikhléi
Einbeittur varnarleikur
Sótt að ísfirska markinu
|