Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Sigur og töp um síðustu helgi16. janúar 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur: Útileikir um næstu helgi Um síðustu helgi léku bæði 2. flokks lið Akureyrar hér heima. Akureyri-2 hóf leik á föstudagskvöldið þegar þeir mættu Gróttu í bikarleik. Leikurinn var æsispennandi og þrátt fyrir að Gróttumenn séu í 1. deild þá máttu þeir þakka fyrir að fara með eins marks sigur, 23-24 eftir að hafa leitt 11-13 í hálfleik. Í hádeginu á laugardag lék Akureyri-2 síðan deildarleik gegn ÍR. Sá leikur var ekki síður spennandi. Jafnt var í hálfleik, 11-11 en að lokum fór ÍR með eins marks sigur 21-22. Strax á eftir hófst deildarleikur Akureyri-1 og Gróttu. Það var ekki síður dramatík í þeim leik, jafnt í hálfleik, 11-11. Í seinni hálfleik voru Gróttumenn með yfirhöndina lengst af en á lokaandartökum leiksins sneri Akureyrarliðið leiknum sér í hag og unnu sætan eins marks sigur 27-26. Þessi sömu lið, Akureyri-1 og Grótta mætast síðar í 8 liða úrslitum bikarsins, sá leikur hefur þó ekki verið dagsettur en verður heimaleikur Akureyrar. Nú um helgina fara bæði Akureyrarliðin suður, Akureyri 1 leikur við Selfoss á föstudaginn klukkan 20:00 og við Val í Vodafone höllinni á laugardaginn klukkan 12:30. Akureyri-2 leikur við ÍR í Austurbergi á föstudaginn klukkan 20:00 og síðan við Þrótt á sama stað klukkan 14:30 á laugardaginn. Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook