Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Ásgeir og félagar eru í bikarbaráttu3. febrúar 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur: Akureyri og Grótta í 8 liða úrslitum á þriðjudag Það verður stórleikur í 2. flokki í Íþróttahöllinni á þriðjudaginn þegar Akureyri mætir Gróttu í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar. Leikurinn hefst klukkan 17:30 og eins og í öllum bikarleikjum þá verður þetta barátta upp á líf eða dauða. Liðin hafa mæst tvisvar í deildinni í vetur og voru báðir leikir hörkuspennandi, Grótta vann sinn heimaleik 26-25 í október. Liðin mættust aftur í Höllinni þann 12. janúar og þar vann Akureyri einnig með einu marki 27-26. Það eru því allar líkur á að þetta verði háspennuleikur og ástæða til að hvetja fólk til að fjölmenna í Höllina á þriðjudaginn og taka á því með strákunum. Leikirnir í 8-liða úrslitunum hjá 2. flokki eru þessir: ÍR – Valur 28-34 Selfoss – FH 24-30 Akureyri-1 – Grótta Haukar – Stjarnan Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook