Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Stjarnan verður mótherji Akureyringa í Undanúrslitunum15. febrúar 2013 - Akureyri handboltafélag skrifarAkureyri mætir Stjörnunni í Undanúrslitum Símabikarsins Nú hefur verið dregið í Undanúrslitin í Símabikarnum og það verður 1. deildarlið Stjörnunnar sem verður mótherji okkar manna. ÍR mætir svo 1. deildarliði Selfoss í hinum leiknum. Nýtt fyrirkomulag er í Bikarnum í ár en Undanúrslitin verða leikin í Laugardalshöll og tveim dögum síðar verður Úrslitaleikurinn spilaður. Leikurinn á móti Stjörnunni fer fram þann 8. mars sem er föstudagur og eins og áður kom fram er leikið í Laugardalshöll. Úrslitaleikurinn fer svo fram 10. mars sem er sunnudagur. Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook