Snorri sýndi mögnuð tilþrif í leiknum í dag
| | 27. mars 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur: Góður sigur á Fram í dagStrákarnir í Akureyri-1 luku deildarkeppninni með flottum sigri á Fram í lokaumferð 1. deildarinnar. Í fyrri hálfleik var lengst af jafnt á flestum tölum. Undir lok hálfleiksins náði Akureyri þó loks smá forskoti sem var reyndar ekki nema tvö mörk í leikhlénu, 15-13.
Í seinni hálfleiknum var þó aldrei spurning um hvort liðið væri sterkara og Akureyri landaði öruggum sjö marka sigri að lokum, 31-24.
Snorri Björn Atlason var gríðarlega öflugur og skoraði 8 mörk, síðasta markið var einkar glæsilegt þegar Snorri stökk jafnfætis hátt í loft og boltinn söng í netinu. Snorri hljóp reyndar beint útaf með krampa eftir tilþrifin.
Mörk Akureyrar: Snorri Björn Atlason 8, Ásgeir Jóhann Kristinsson 4, Friðrik Svavarsson 4, Garðar Jónsson 4, Brynjar Grétarsson 3, Kristján Sigurbjörnsson 3, Daníel Matthíasson 2, Egill Gunnarsson 2 og Sigþór Heimisson 1.
Tomas Olason byrjaði í markinu og varði 2 skot, Gunnar Bjarki Ólafsson tók við og var frábær í seinni hálfleiknum, varði 10 skot alls.
Hjá Fram var Stefán Þórsson með 7 mörk, Sigurður Þorsteinsson 6, Ólafur Magnússon 5, Garðar Sigurjónsson 3 og Sigurbjörn Edwaldsson 3 mörk.
Með þessum sigri er ljóst að Akureyri verður allavega í 4. sæti deildarinnar en gæti endað í 3. sæti ef Grótta tapar lokaleiknum sínum gegn Stjörnunni. |