Það er mikið fjör á æfingum Akureyrar Handboltafélags þessa dagana enda mikil eftirvænting hjá hópnum fyrir æfingamótinu í Þýskalandi í næstu viku. Eftir því sem við komumst næst þá halda strákarnir á stað á þriðjudaginn og taka æfingaleik við ÍR áður en flogið verður út.
Væntanlega verður tekinn einn æfingaleikur úti áður en sjálft mótið hefst en í því verða þrír leikir á föstudag, laugardag og sunnudag.
Ábúðafullir þjálfarar, Bjarni Fritszon og Heimir Örn Árnason
Þjálfararnir Heimir og Bjarni leggja áherslu á að liðið komi öflugt til leiks enda er þetta alvörumót með alvöruliðum. Það er því virkilegur kraftur í leikmönnum á æfingunum, nú eru allir nýju leikmennirnir komnir í bæinn og líta þeir virkilega vel út.
Heimasíðan kíkti á æfingu hjá liðinu í gær og smellti af nokkrum myndum af sveittum mönnum þar sem þeir köstuðu mæðinni eftir átökin.
Eldhressir Serbar Vladimir Zejak og Jovan Kukobat
Arnór Þorri Þorsteinsson er einn af yngstu mönnunum í liðinu
Kristján Már Sigurbjörnsson lék sína fyrstu meistaraflokksleiki í fyrra
Nýliðinn Kristján Orri Jóhannsson í léttri slökun
Sissi lét ekki sitt eftir liggja og þurfti að kæla sig niður í lokin
Markvörðurinn Tomas loftaði létt um tærnar
Gunnar þurfti á öflugri kælingu enda gefur hann allt í æfingarnar
Þrándur lætur þreytuna líða úr skrokknum
Halldór Logi hefði getað tekið aðra æfingu strax í kjölfarið