Warning: Undefined variable $udleiks in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 16
Viðtöl eftir ÍBV leikinn - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Arnór Þorri kom af krafti inn í leikinn

6. október 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Viðtöl eftir ÍBV leikinn

Það var frekar dauft yfir Akureyringum eftir leikinn gegn ÍBV á laugardaginn en að sama skapi var létt yfir Eyjamönnum. Einar Sigtryggsson, blaðamaður mbl. ræddi við nýliðann Arnór Þorra Þorsteinsson sem sýndi góða takta í liði Akureyrar svo og brosmildan Magnús Stefánsson, frá Fagraskógi sem líkt að aðrir Eyjamenn voru sáttir í leikslok:

Arnór Þorri: Gáfum þeim leikinn

„Þetta var ekki gott hjá okkur í dag, við vorum bara slakir og það vantaði eitthvað hjá okkur. Ég kom inn þegar Valþór meiddist en fram að því var virkilega erfitt að horfa upp á það sem var að gerast. Við vorum ekki nógu grimmir í vörninni og tókum mörg léleg skot. Svo voru einstaklingsmistökin allt of mörg og þetta telur allt. Munurinn á liðunum er alls ekki mikill en við gáfum þeim þetta hér í dag. Það er erfitt að útskýra hvað gerðist því við vorum vel stemmdir fram að leik. Við þurfum að bæta fyrir þennan skell með því að koma bandbrjálaðir í næsta leik gegn HK. Ég veit að þetta á eftir að smella saman hjá okkur og hef því engar áhyggjur“ sagði Arnór en hann og Jovan Kukobat eru líklega einu leikmenn Akureyrarliðsins sem gátu gengið nokkuð keikir frá leiknum.


Arnór Þorri brýst í gegnum ÍBV vörnina

Magnús Stefánsson: Allt Jónasi flugmanni að þakka

Magnús Stefánsson, frá Fagraskógi, var ekki að spila sinn fyrsta leik í Íþróttahöllinni á Akureyri þegar hann leiddi sína menn til sigurs gegn Akureyringum, 35:22, í Olísdeild karla í handknattleik í dag.. Lék hann lengi með KA og síðar Akureyri áður en Eyjarnar heilluðu. Hann var eins og fleiri hálf rasandi eftir hinn auðvelda þrettán marka sigur Eyjamanna.

„Ég veit bara varla hvað ég á að segja. Þetta var mjög sérstakur leikur og við tókum þetta bara strax með sterkum leik sem þeir áttu engin svör við. Þeir hljóta að vera verulega svekktir með sinn leik. Þjálfararnir okkar voru svoleiðis búnir að kortleggja Akureyringana upp á tíu og við fórum bara eftir því sem átti að gera. Vörnin var flott og Sindri lamdi okkur áfram allan tímann, Markvarslan var líka fín og svo voru menn virkilega að blómstra í sókninni. Við bara náðum að brjóta þá niður og smám saman tókum við völdin og það má segja að þetta hafi verið búið í hálfleik.

Þessi vörn okkar er gæluverkefni þjálfarans og hún virkaði vel í dag en ekki gegn Haukum í síðasta leik. Mér finnst alltaf gott að koma norður og þrátt fyrir að áhorfendur hafi látið sig vanta í dag þá verð ég að hrósa þeim sem mættu. Það var ágæt stemmning og öll umgjörðin hérna er til fyrirmyndar og greinilega frábærlega staðið að öllu. Ég vil líka hrósa flugmanninum, honum Jónasi, sem lóðsaði okkur hingað úr Eyjum. Flugið var þægilegt og sigurinn líka svo þetta er allt honum að þakka,“ mælti Magnús Stefánsson.


Magnús gat brosað breitt í leikslok

Birgir H. Stefánsson, blaðamaður Vísis ræddi við þjálfarana, Heimi Örn Árnason og Gunnar Magnússon eftir leikinn:

Heimir Örn Árnason: Algjör aftaka

„Þetta var bara algjör aftaka,“ sagði Heimir þungur á brún strax eftir leik. „Ég held að það sé erfitt að finna eitthvað gott til að taka úr þessum leik. Við komumst varla í vörn síðasta korterið í fyrri hálfleiknum. Við vorum með einhverja 18 tapaða bolta sem er allavega tíu of mikið.“

Var þetta bara einn af þessum dögum þar sem ekkert gengur upp?
„Já en það er sama. Menn verða að líta í eigin barm núna og læra af þessu, við viljum ekki mæta svona til leiks eins og aumingjar aftur. Þessi heimavöllur á bara að vera vígi. Ég veit ekki hvort að leiktíminn hafi farið svona agalega í menn en þeir eiga nú að vera reynslumeiri en það í þessum bolta. Næsti leikur er HK úti og ef menn ætla að spila svona þá fer það ekki vel. Mjög erfiður útivöllur þar sem þeir náðu jafntefli á móti FH. Þeir hafa þannig séð engu að tapa og mæta því alltaf dýrvitlausir.


Heimir þarf að rífa sína menn upp fyrir næsta leik

Gunnar Magnússon: 24 marka sveifla milli leikja

„Við áttum auðvitað von á hörkuleik enda alltaf erfitt að koma hingað norður,“ sagði Gunnar Magnússon þjálfari ÍBV eftir leik.
„Við vorum bara frábærir í dag. Vörnin góð, markvarslan einnig og sóknin öguð. Virkilega ánægður með strákana í dag. Það stigu allir upp í dag, allir gerðu sitt. Þegar það gerist þá erum við bara helvíti góðir.“

Það er töluvert um sveiflur í leik ÍBV það sem af er tímabils.
„Já, þú sérð það að núna er 24 marka sveifla milli leikja frá heimavelli og yfir á erfiðan útivöll fyrir norðan. Núna þurfum við að ná Eyjamönnum niður á jörðina, þeir eiga það til að fara of hátt upp eftir sigra. Núna er það okkar verkefni að ná mönnum niður á jörðina aftur og undirbúa leikinn gegn FH.“

Er stefnan sett á toppbaráttu?
„Við ætluðum að komast í gegnum þessa byrjun og erum komnir með fjögur stig og þau eru ekki tekin af okkur. Við erum ánægðir með þessa byrjun en við tökum þetta bara leik fyrir leik. Ef við ætlum að vera með í toppbaráttu þá þurfum við að geta strítt liðum eins og FH og Haukum, við sjáum hvernig þetta fer í næsta leik.“


Gunnar lagðist á bæn í leiknum og var bænheyrður

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson