Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
HSÍ með nýjan styrktaraðila í bikarnum1. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifarAkureyri mætir Þrótti í fyrstu umferð bikarkeppninnar Í hádeginu í dag var dregið í fyrstu umferð, eða 32-liða úrslit bikarkeppni karla. Í leiðinni var upplýst að bikarkeppnin í ár kallast Coca-Cola bikarinn. 28 karlalið voru í pottinum og dróst Akureyri Handboltafélag á móti 1. deildarliði Þróttar. Þróttur fær heimaleikinn þar sem þeir eru í neðri deild. Annars drógust liðin saman sem hér segir: Stjarnan - Valur KR - ÍBV Hörður - Selfoss Þróttur - Akureyri Haukar 2 - Fylkir ÍBV 2 - Valur 2 Fjölnir 2 - Grótta Leiknir - HK ÍH - Árborg Afturelding - Fjölnir Haukar, FH, Fram, ÍR, Víkingur og Völsungur sitja hjá í þessari umferð. Leikir karlaliðanna eiga að fara fram 17. og 18. nóvember. Í Coca-Cola bikar kvenna fékk KA/Þór heimaleik gegn ÍBV en kvennaliðin drógust saman sem hér segir: Haukar - Selfoss FH - Afturelding KA/Þór - ÍBV HK - Grótta Fylkir, Stjarnan, Fram og Valur sitja hjá í þessari fyrstu umferð. Kvennaleikirnir verða spilaðir 12. og 13. nóvember. Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook