Til hamingju Gunnar og Valþór
| | 10. desember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifarGunnar og Valþór í úrvalsliði 11. umferðar hjá MblMorgunblaðið birti í morgun val á úrvalsliði 11. umferðar Olís-deildar karla og að þessu sinni á Akureyri tvo fulltrúa í liðinu. Það eru skyttan/leikstjórnandinn Valþór Guðrúnarson og Gunnar Malmquist Þórsson sem varnarmaður. Báðir fóru á kostum í sigurleiknum gegn HK og eru vel að þessu vali komnir.
Úrvalslið umferðarinnar að mati mbl er þannig skipað: Vinstra horn: Bjartur Guðmundsson, Val Vinstri skytta: Magnús Stefánsson, ÍBV Leikstjórnandi: Andri Heimir Friðriksson, ÍBV (3) Hægri skytta: Valþór Guðrúnarson, Akureyri (3) Hægra horn: Sveinn Aron Sveinsson, Val (2) Línumaður: Jón Heiðar Gunnarsson, ÍR (3) Markvörður: Haukur Jónsson, ÍBV (2) Varnarmaður: Gunnar Malmquist Þórsson, Akureyri (2)
Andri Heimir Friðriksson er jafnframt leikmaður umferðarinnar að mati mbl. Tölurnar innan sviga tákna hversu oft viðkomandi hefur verið í úrvalsliði mbl.
Þessu til viðbótar má nefna að Valþór var einnig valinn í úrvalslið 11. umferðar hjá handbolti.org sem vinstri skytta en þeirra úrvalslið var líka birt í dag:
Markvörður: Daníel Freyr Andrésson, FH (5) Línumaður: Jón Heiðar Gunnarsson, ÍR (3) Vinstri hornamaður: Sturla Ásgeirsson , ÍR (4) Vinstri skytta: Valþór Guðrúnarson, Akureyri (2) Miðjumaður: Andri Heimir Friðriksson, ÍBV (2) Hægri skytta: Árni Steinn Steinþórsson, Haukum (2) Hægri hornamaður: Sveinn Aron Sveinsson , Val (2). Gunnar Þórsson gengur vasklega fram í vörninni gegn HK
Valþór skorar eitt af 10 mörkum sínum gegn HK
|