Lokahóf Akureyrar Handboltafélags var haldið á Bryggjunni í gærkvöld. Þar komu saman leikmenn, stjórnarmenn og fjölmargir sem hafa unnið mikið starf við framkvæmd leikja á tímabilinu. Eftir frábærar veitingar var komið að því að tilkynna um viðurkenningar sem hefð er að veita í lok tímabila.
Hlynur Jóhannsson og Hannes Karlsson lýstu niðurstöðum sem voru sem hér segir:
Leikmaður 2. flokks: Brynjar Hólm Grétarsson
Efnilegasti leikmaður meistaraflokks: Sigþór Árni Heimisson
Besti varnarmaður: Jovan Kukobat
Besti sóknarmaður: Kristján Orri Jóhannsson
Besti leikmaður: Bjarni Fritzson
Þetta var einnig kveðjustund Bjarna Fritzsonar sem hefur verið hjá félaginu undanfarin fjögur ár. Þeim Bjarna og konu hans, Tinnu Baldursdóttur voru færðar sérstakar þakkir fyrir frábær kynni og þakkætisgjöf um leið og þeim var árnað heilla á nýjum vettvangi.
Brynjar Hólm, besti leikmaður 2. flokks
Sigþór Árni Heimisson, efnilegasti leikmaður tímabilsins
Jovan Kukobat, besti varnarmaður tímabilsins
Bjarni Fritzson, besti leikmaður tímabilsins
Kristján Orri Jóhannsson, besti sóknarmaðurinn var ekki viðstaddur en Halldór Logi Árnason tók við viðurkenningunni í fjarveru Hans.
Tinnu og Bjarna þökkuð samfylgdin undanfarin ár