Tomas byrjađi međ látum í markinu
| | 19. september 2014 - Akureyri handboltafélag skrifarÖruggur sigur á HK í fyrsta leikHK og Akureyri mćttust í gćrkvöldi í sínum fyrsta leik í Olís-deildinni. Bćđi liđ mćttu nokkuđ breytt til leiks frá ţví í fyrravor og ţví var spenna í loftinu ađ sjá hvernig liđin litu út. Guđni Már Kristinsson sem kom til HK frá ÍR var allt í öllu hjá heimamönnum. Eftir 10 mínútna leik var jafnt, 3-3 og hafđi Guđni Már skorađ öll mörk heimamanna. Hér skildu leiđir og Akureyri tók leikinn í sínar hendur. Munurinn varđ mestur átta mörk, 4-12 en HK klórađi í bakkann og náđi ađ minnka muninn niđur í fjögur mörk fyrir hálfleik, 9-13.
Akureyrarliđiđ lék afar vel, jafnt í vörn sem sókn og Tomas Olason í banastuđi í markinu. Sverre og Ingimundur fóru fyrir varnarleiknum Akureyri hóf seinni hálfleikinn af krafti, skoruđu fyrstu ţrjú mörkin og hélt öruggri forystu sem líkt og í fyrri hálfleik varđ mest átta mörk 13-21 og 14-22 ţegar tólf mínútur voru til leiksloka.
Á lokamínútunum leystist leikurinn upp og töluvert um mistök á báđa bóga, eđa jafnvel alla bóga ţví dómarar leiksins gerđu einnig töluvert af mistökum sem Akureyrarliđiđ var ekki sátt viđ. Slepptu augljósu víti, vafasamir brottrekstrar svo eitthvađ sé nefnt. Á lokasekúndum leiksins var mikil dramatík, brotiđ var á Kristjáni Orra í hrađaupphlaupi en ekkert dćmt en í stađinn skorađi HK úr hrađaupphlaupi og í leiđinni fékk Brynjar Hólm Grétarsson beint rautt spjald. Brynjar Hólm kom heldur betur viđ sögu í leiknum Sigur Akureyrar var síst of stór, varnarleikurinn sterkur og margt fínt í sóknarleiknum, eitthvađ vantađi reyndar upp á einbeitinguna ţví ađ aragrúi dauđafćra fór forgörđum, jafnt úr hrađaupphlaupum sem af línunni, en allir sáttir viđ góđ tvö stig í hús. Tomas Olason átti stórleik í markinu. Myndir: visir.is Mörk Akureyrar: Kristján Orri Jóhannsson 7, Brynjar Hólm Grétarsson 5, Elías Már Halldórsson 3, Ţrándur Gíslason 3, Heiđar Ţór Ađalsteinsson 2, Ingimundur Ingimundarson 2, Andri Snćr Stefánsson 1, Halldór Logi Árnason 1, Sigţór Árni Heimisson 1. Tomas Olason var frábćr í markinu, varđi 19 skot og ţar af 1 vítakast og verđskuldar ađ vera útnefndur mađur leiksins.
Mörk HK: Guđni Már Kristinsson 8, Óđinn Ţór Ríkharđsson 3, Leó Snćr Pétursson 3, Tryggvi Ţór Tryggvason 2, Ţorkell Magnússon 2, Ţorgrímur Smári Ólafsson 2, Aron Gauti Óskarsson 1. Lárus Helgi Ólafsson stóđ í marki HK manna og átti góđan leik. |