Það er stutt á milli leikja hjá Hömrunum sem léku tvo útleiki um helgina. Hamrarnir fá vesturbæjarstórveldið KR í heimsókn á þriðjudaginn og hefst leikurinn klukkan 19:30 í Íþróttahöllinni. Eftir fimm leiki eru Hamrarnir með 6 stig en KR hefur 2 stig eftir fjóra leiki.
Með liði KR leika fjórir fyrrum leikmenn Akureyrar, markvörðurinn Arnar Sveinbjörnsson lék 17 leiki með meistaraflokk á fyrstu tveim árum félagsins. Skyttan og leikstjórnandinn Jóhann Gunnarsson lék sex leiki með meistaraflokki, báðir léku einnig með 2. flokki sem og þeir Fannar Kristmannsson og línumaðurinn Steinþór Andri Steinþórsson.Það verður fróðlegt að sjá þá félaga í Höllinni í kvöld.

Arnar Sveinbjörnsson sem klettur í markinu og lætur sem ekkert sé

Jóhann Gunnar lætur vaða á markið

Steinþór trúlega að yfirgefa völlinn í tvær mínútur

Fannar víkur sér undan bendingum dómarans
Hamrarnir eru skemmtileg blanda ungra leikmanna og með þeim spila nokkrir reynsluboltar þegar þeir hafa tök á. Í síðasta heimaleik sem var gegn ÍH átti Hreinn Hauksson stórleik, jafnt í vörn sem sókn en hann og Heimir Örn Árnason eru trúlega aldursforsetar hópsins.

Hreinn Þór Hauksson fór á kostum gegn ÍH í Höllinni

Birkir Guðlaugsson einn af ungu strákunum
Það er um að gera að skella sér í Höllina í kvöld og hita upp fyrir leik Akureyrar og FH á fimmtudaginn.