Með leikjum gærkvöldsins lauk 11. umferð Olísdeildar karla og þar með er vefurinn fimmeinn.is búinn að velja úrvalslið umferðarinnar. Frábær frammistaða Akureyrarliðsins gegn Haukum skilaði þeim Tomasi Olasyni og Kristjáni Orra Jóhannssyni í liðið. Úrvalslið 11. umferðar er þannig skipað að áliti blaðamanna fimmeinn.is:Markvörður: Tomas Olason, Akureyri
Vinstri hornamaður: Andri Hjartar Grétarsson, Stjarnan
Vinstri skytta: Egill Magnússon, Stjarnan
Lína: Kári Kristján Kristjánsson, Valur
Miðja: Örn Ingi Bjarkasson, Afturelding
Hægri hornamaður: Kristján Orri Jóhannsson, Akureyri
Hægri skytta: Jóhann Gunnar Einarsson, Afturelding
Við óskum Tomasi og Kristjáni til hamingju svo og öllum þessum leikmönnum.

Tomas Olason skartaði nýrri greiðslu og hárbandi í leiknum

Kristján Orri raðaði inn mörkum úr hægra horninu gegn Haukum