Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Brynjar er gjaldgengur með 2. flokki14. apríl 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur: Leiknum gegn FH frestað til miðvikudags Strákarnir í 2. flokki áttu að leika í dag, þriðjudag, gegn FH í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins. Leiknum hefur hins vegar verið frestað um sólarhring þannig að nýr leiktími er klukkan 18:30 miðvikudaginn 15. apríl. Leikið verður í Kaplakrika, heimavelli FH, en á þessu stigi er aðeins einn leikur þannig að það er allt undir í honum. Strákarnir í 2. flokki enduðu í 2. sæti í 2. deildinni og tryggðu sér þannig síðasta sætið inn í úrslitakeppnina en FH varð Deildarmeistari í 1. deildinni. Það er því ljóst að verkefnið er erfitt en allt getur gerst í svona leikjum. Við hvetjum alla sem geta til að kíkja í Kaplakrikann og styðja strákana. Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook