Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Kristján Orri fer á afreksæfingu á morgun ásamt Tomasi19. september 2015 - Akureyri handboltafélag skrifarKristján Orri og Tomas í afrekshópi HSÍ Í gær var tilkynntur fyrsti afrekshópur HSÍ á tímabilinu en hugmyndin er að gefa ungum og efnilegum leikmönnum tækifæri á að æfa og sanna sig. Hópurinn verður eðlilega breytilegur yfir tímabilið þannig að enn geta menn sem ekki eru í hópnum komist með góðri spilamennsku í hópinn. Að þessu sinni á Akureyri Handboltafélag tvo leikmenn í hópnum en það eru hornamaðurinn Kristján Orri Jóhannsson og markvörðurinn Tomas Olason. Við óskum þeim félögum til hamingju með þetta og góðs gengis á æfingunum en fyrsta æfing hópsins er á morgun, sunnudag. Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook