Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Það verður hörkuleikur gegn Aftureldingu á miðvikudaginn
22. mars 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar
Heimaleikur gegn Aftureldingu á miðvikudaginn
Það er að koma að lokum Olís deildarkeppninnar hjá karlaliðunum en næstsíðasta umferðin verður spiluð á miðvikudagskvöldið. Þrátt fyrir að ljóst sé að Haukar séu deildarmeistarar og að Víkingar og ÍR falli þá er heilmikil barátta um sæti 3 til 8 í deildinni og þar með hvaða lið mætast í átta liða úrslitunum.
Akureyri tekur á móti Aftureldingu á miðvikudaginn en það er skilyrði að allir leikir umferðarinnar fari fram á sama tíma og því verður flautað til leiks klukkan 19:30.
Liðin mættust einnig hér á Akureyri í mögnuðum leik þann 12. nóvember þar sem Akureyri vann góðan fimm marka sigur, 25-20.
Afturelding sótti nýjan leikmann í landsleikjahléinu í janúar þar sem þeir fengu Mikk Pinnonen frá Eistlandi og hefur hann farið á kostum með liðinu jafnt sem skytta og leikstjórnandi. Mikk hefur skorað 43 mörk í sjö leikjum eða rúmlega sex mörk að meðaltali í leik. Tveir leikmenn fóru hins vegar frá Aftureldingu, línumaðurinn Ágúst Birgisson fór til FH og leikstjórnandinn Bjarki Lárusson fór til Fjölnis.
Síðustu leikir Aftureldingar hafa verið miklir baráttuleikir, þeir töpuðu í síðustu umferð fyrir FH 23:25, þar á undan sóttu þeir eins marks sigur á ÍR í Austurbergi, 24:25 þar sem okkar fyrrum samherjar Þrándur Gíslason og Gunnar Þórsson áttu stórleik.
Þrándur og Gunnar hugsi í fyrri leik liðanna hér í vetur
Orkulyklahappdrættið – veglegir vinningar
Allir sem hafa virkjað Akureyrarlykil Orkunnar eru þátttakendur í glæsilegu happdrætti en í hálfleik á miðvikudaginn verður einmitt dregið og tilkynnt um vinningshafa í happdrættinu.
Vinningar í happdrættinu eru:
10.000 króna eldsneytisinneign hjá Orkunni
Keppnistreyja Akureyrar Handboltafélags
Gisting á Storm Hótel Reykjavík með morgunverði fyrir tvo
5.000 krónu inneign hjá Greifanum
Hádegisverður fyrir tvo á veitingastaðnum Múlaberg
Það er því engin spurning fyrir þá sem ekki hafa enn náð sér í Orkulykil Akureyrar að ná sér í einn slíkan og virkja hann nú þegar!
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson