Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Það verður nægur handbolti í boði á Akureyri næsta vetur!18. maí 2016 - Akureyri handboltafélag skrifarAkureyri sendir ungmennalið til leiks - Hamrarnir snúa aftur og verða einnig með Í dag var það endanlega staðfest að Akureyri mun senda til leiks ungmennalið í meistaraflokki en liðið mun leika í 1. deildinni og ber nafnið Akureyri-U. Einnig mun hið Akureyrska lið Hamranna senda lið til leiks en félagið sendi ekki lið til leiks í vetur eftir að hafa gert slíkt tvö ár á undan. Þetta eru miklar gleðifregnir enda gefur þetta fleiri leikmönnum hér á Akureyri tækifæri á að spila og sýna sig. Einnig verður ákaflega gaman að sjá Akureyrarslag þegar Akureyri-U og Hamrarnir munu leiða saman hesta sína. Það verða því 10 lið í efstu deild og 11 lið í 1. deildinni á komandi tímabili. Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook