Warning: Undefined variable $udleiks in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 16
Íslandsmeistarar Hauka koma á miðvikudaginn! - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það er mikið undir hjá báðum liðum

4. október 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Íslandsmeistarar Hauka koma á miðvikudaginn!

Eftir góða ferð Akureyrarliðsins á Selfoss tekur heldur betur alvaran við á miðvikudaginn þegar Íslandsmeistarar Hauka mæta norður yfir heiðar. Liðin mættust síðast hér fyrir norðan í vor í átta liða úrslitum. Margir töldu nánast formsatriði fyrir Hauka að klára þann leik en annað kom á daginn. Akureyrarliðið náði fram sínum albesta leik og vann magnaðan fjögurra marka sigur.


Það var ekkert gefið eftir og menn börðust fyrir sínu

Nú er bara að kalla fram sömu geðveikina og trú á verkefnið og þá þarf ekki að efast um að það verður fjör á vellinum.

Staða liðanna í deildinni er athygliverð, eftir fimm umferðir hafa bæði lið unnið einn leik og í báðum tilfellum kom sigurinn gegn heimamönnum á Selfossi, þriggja marka sigur í báðum tilfellum.

Haukar unnu úrslitaeinvígið í vor gegn Aftureldingu og má segja að þeir haldi nánast öllum sínum mannskap frá því í vor. Varnarjaxlinn Matthías Árni Ingimarsson lagði raunar skóna á hilluna og Leonharð Þorgeir Harðarson gekk til liðs við Gróttu.
Á hinn bóginn fengu Haukarnir mikinn liðsstyrk, þeir endurheimtu landsliðsmanninn Guðmund Árna Ólafsson úr atvinnumennsku auk þess sem Þórður Rafn Guðmundsson sneri heim úr atvinnumennsku. Þá kom Andri Heimir Friðriksson til liðs við Hauka frá ÍBV. Þannig að leikmannahópur Hauka virðist vera enn þéttari og breiðari en á síðasta tímabili. Þjálfari Hauka er líkt og í fyrra Gunnar Magnússon.


Gunnari Magnússyni var ekki skemmt í síðustu heimsókn sinni norður

Í markaskorun Hauka skera þrír leikmenn sig nokkuð úr, Adam Haukur Baumruk með 32, Guðmundur Árni Ólafsson 31 og Janus Daði Smárason með 30. Þar á eftir kemur línumaðurinn Jón Þorbjörn Jóhannsson með 18 mörk og aðrir minna.

Það er rétt að ítreka að vegna Evrópuleikja Hauka þá er leikurinn á óvenjulegum tíma þ.e.a.s. ekki hefðbundinn fimmtudagsleikur heldur á miðvikudegi en hefst klukkan 19:00. Við treystum því að stuðningsmenn láti þetta berast til allra í kringum sig og fjölmenni í KA heimilið á miðvikudaginn enda hægt að lofa góðri skemmtun.

Sjáumst í KA heimilinu á miðvikudaginn!

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson