Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Tomas sneri aftur í byrjunarliðið og stóð sig með prýði
22. október 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar
Hörkuleikur á Hlíðarenda en engin stig í farteskinu
Akureyri sótti lið Vals heim í 8. umferð Olís deildarinnar í dag. Heimamenn höfðu unnið fjóra leiki í röð eftir að hafa tapað fyrstu þremur leikjum sínum, á sama tíma þurfti okkar lið á sigri að halda enda á botni deildarinnar.
Tomas Olason markvörður okkar sneri aftur í byrjunarliðið eftir meiðsli og byrjaði af krafti. Því miður gekk sóknarleikurinn brösuglega í upphafi og Valsarar náðu fljótlega góðu taki á leiknum. Eftir um kortérs leik var staðan 9-4 fyrir Val og útlitið ekki gott.
En Akureyrarliðið er þekkt fyrir að gefast aldrei upp og við tók 0-4 kafli sem breytti stöðunni í 9-8. Allt annað var að sjá til liðsins og voru strákarnir óheppnir að hafa ekki yfir þegar flautað var til hálfleiks en hálfleikstölur voru 11-11.
Síðari hálfleikur hófst eins og hvernig sá fyrri lauk, okkar lið var betri aðilinn og þegar 20 mínútur lifðu leiks var staðan 16-18 og útlitið gott. En það hefur oft reynst erfitt fyrir Akureyri að klára leiki á Hlíðarenda og heimamenn svöruðu með næstu fjórum mörkum, 20-18.
En áfram reyndu menn hvað þeir gátu og tók Tomas nokkra mikilvæga bolta og þegar 6 mínútur voru eftir jafnaði Sissi metin í 21-21 og á sama tíma fékk Orri Freyr Gíslason tveggja mínútna brottvísun.
Það að vera einum fleiri hefur oft gert lítið fyrir Akureyri síðustu árin og því miður nýttist liðsmunurinn ekki og lokaspretturinn var Valsmanna sem fóru á endanum með sigur af hólmi, 24-22.
Mjög svo svekkjandi tap staðreynd en spilamennska liðsins segir til um það að stutt er í næsta sigur. Byrjunin á tímabilinu er vissulega undir væntingum en það er ennþá nóg eftir af tímabilinu og við gleymum því ekki að byrjunin á síðasta tímabili var heldur alls ekki glæsileg.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson