Warning: Undefined variable $udleiks in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 16
Jafntefli í háspennuleik gegn FH - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

100 og 200 leikja mennirnir

27. október 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Jafntefli í háspennuleik gegn FH

Það er óhætt að segja að áhorfendur á leik Akureyrar og FH hafi fengið þó nokkuð fyrir peninginn, allavega vantaði ekki spennuna og dramatíkina í leikinn. Fyrir leik, að lokinni hefðbundinni leikmannakynningu veitti Akureyri Handboltafélag þrem leikmönnum viðurkenningu fyrir dygga þjónustu. Andri Snær Stefánsson er nýkominn yfir 200 leikja þröskuldinn en leikurinn í kvöld var sá 203. fyrir félagið. Andri Snær er jafnframt leikjahæsti maður í sögu liðsins og fékk að launum áletraðan skjöld.

Sigþór Árni Heimisson og Tomas Olason eru komnir í 100 leikja klúbbinn, leikur kvöldsins var sá 105 hjá Sigþóri Árna en sá 100. hjá Tomasi. Þeir fengu báðir blómvendi í tilefni þessara tímamóta.


Sigþór Árni, Tomas og Andri Snær með viðurkenningar sínar. Maron Pétursson afhenti fyrir hönd félagsins

Hér er hægt að skoða ýmsa áhugaverða tölfræði um liðið og einstaka leikmenn allt frá upphafi félagsins.

En að leiknum sjálfum - þá byrjaði Akureyrarliðið með látum og komst í 3-0 áður en FH komst á blað. En í kjölfarið komst FH liðið í gang og eftir tæplega tíu mínútna leik jöfnuðu þeir í 4-4 með marki Jóhanns Ingvarssonar sem reyndist afdrifaríkt því hann skall harkalega á fæti Brynjars Hólm Grétarssonar sem meiddist illa og kom ekkert meira við sögu í leiknum. Brynjar hafði þá þegar skorað tvö af mörkum Akureyrar.

Nokkrum mínútum síðar lauk þátttöku Kristjáns Orra Jóhannsonar í leiknum en hann hefur átt við meiðsli að stríða þannig að þarna voru tveir öflugir menn úr leik. Þetta notfærðu FH ingar sér og breyttu stöðunni í 4-8 áður en heimamenn náðu að klóra í bakkann. Með góðum kafla minnkaði munurinn í eitt mark, 9-10. FH-ingar reyndust sterkari í lokakafla hálfleiksins, fengu að vísu fullmikla hjálp frá dómurum leiksins sem ráku tvo Akureyringa útaf með örstuttu millibili fyrir litlar sakir. Hálfleiksstaðan 11-14 gestunum í vil.

Seinni hálfleikur hófst með miklum látum og heimamenn söxuðu smám saman niður forskot FH-inga. Karolis Stropus minnkaði muninn í eitt mark, 15-16 með tveim mörkum í röð. Sigþór Árni Heimisson var gríðarlega öflugur og lagði þrjú mörk í púkkið sem dugði til að jafna loks leikinn í 20-20 og enn ellefu mínútur eftir af leiknum.

Áfram var jafnt 21-21 og 22-22 en þá náðu FH-ingar tveim mörkum í röð og breyttu stöðunni í 22-24 þegar tæpar sjö mínútur voru til leiksloka. Mikill darraðardans var stiginn þær mínútur, ungu strákarnir Arnþór Gylfi Finnsson og Garðar Már Jónsson sáu um að jafna leikinn í 24-24 með sitt hvoru markinu og enn voru þrjár mínútur til stefnu. Þá átti enn einn unglingurinn, Birkir Guðlaugsson afar góða innkomu í vörninni og náði að trufla sóknaraðgerðir FH-inga sem skoruðu ekki mark þessar síðustu sjö mínútur.


Arnþór Gylfi Finnsson með mark sitt í kvöld

Akureyri fékk kjörið tækifæri til að komast yfir þegar Stropus skaut að tómu marki FH inga en á óskiljanlegan hátt tókst Ágústi Elí markverði að kasta sér fyrir skotið og blaka boltanum afturfyrir. Akureyri átti síðustu sókn leiksins sem varð löng en tókst aldrei að opna vörn FH liðsins og jafntefli því niðurstaðan 24-24.

Margt gríðarlega jákvætt við leikinn og ekki síst að fá stig úr leiknum þó menn hefðu ekki haft á móti því að fá þau bæði. Sigþór Árni Heimsson var afar drjúgur, sérstaklega í seinni hálfleiknum auk þess sem Mindaugas Dumcius og Karolis Stropus voru að skila afar góðu framlagi til liðsins.

Mörk Akureyrar: Karolis Stropus 5, Sigþór Árni Heimisson 5, Friðrik Svavarsson 4, Mindaugas Dumcius 4, Brynjar Hólm Grétarsson 2, Andri Snær Stefánsson, Arnþór Gylfi Finnsson, Garðar Már Jónsson og Patrekur Stefánsson 1 mark hver.
Markvarslan var ekkert sérstök lengi framan af en Tomas Olason átti nokkrar góðar vörslur þegar leið á leikinn. Tomas varði 9 skot og Arnar Þór Fylkisson 2 skot.

Mörk FH: Óðinn Þór Ríkharðsson 8, Einar Rafn Eiðsson 6 (2 úr vítum), Arnar Freyr Ársælsson 4, Jóhann Birgir Ingvarsson 4 og Ágúst Birgisson 2 mörk.
Í markinu stóð Ágúst Elí Björgvinsson allan tímann og varði 14 skot, þar af 1 vítakast.

Mindaugas Dumcius var valinn maður Akureyrarliðsins og Einar Rafn Eiðsson maður FH liðsins. Nú tekur við tveggja vikna hlé á Olísdeildinni vegna landsliðsverkefna en næsti leikur Akureyrarliðsins er heimaleikur gegn Stjörnunni þann 10. nóvember.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson