Warning: Undefined variable $udleiks in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 16
Úkraínskur landsliðsmaður til Akureyrar - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Igor í búningi litháenska liðsins HC Dragunas

31. október 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Úkraínskur landsliðsmaður til Akureyrar

Eins og menn ef til vill muna lék Úkraínskur hornamaður með Akureyri á Opna Norðlenska mótinu í lok ágúst. Pilturinn heitir Igor Kopyshynskyi og leist mönnum býsna vel á hann og því var ákveðið að fá hann til liðs við Akureyri Handboltafélag.

Það hefur þó ekki gengið alveg þrautalaust fyrir sig og reynst ótrúlega tímafrekt að ganga frá öllum pappírsmálum. En nú loksins eru allir pappírar og skjöl fengin og stimpluð af öllum þeim stofnunum sem þurfa að koma að málinu og voru síðustu hnútarnir hnýttir í dag og Igor þannig kominn með leikheimild eftir langa bið.

Igor er fæddur 26. febrúar 1991 og er því 25 ára gamall, hann er 181 cm á hæð og getur leyst ýmsar stöður á vellinum þó hans aðalhlutverk hafi verið vinstri hornamaður. Fram til vorsins 2014 lék hann með HC Portovik í Úkraínu en hefur síðan þá leikið með HC Dragunas í Litháen. Með Dragunas varð hann bæði bikar- og landsmeistari vorið 2015. Þess má geta að Igor var liðsfélagi Karolis Stropus og Mindaugas Dumcius hjá Dragunas og þekkjast þeir því vel.


Igor á vítapunktinum fyrir RK Dragunas

Fyrir örfáum dögum var Igor einmitt valinn í úkraínska landsliðið sem mætir Makedóníu og síðan Íslandi laugardaginn 5. nóvember. Ísland og Úkraína hafa ekki oft mæst á vellinum, trúlega síðast á HM 2007 þar sem Úkraína vann 29-32 og kom Íslandi í þá stöðu að verða að vinna Frakkland daginn eftir til að eiga möguleika á að komast áfram. Þetta tap kveikti heldur betur í íslenska liðinu sem vann stórsigur á Frökkum, 32-24 og endaði loks í 8. sæti á mótinu.
Það verður fróðlegt að fylgjast með landsleiknum á laugardaginn og hvort félagi Igor fær tækifæri til að spreyta sig.

Að loknu þessu landsliðsverkefni kemur Igor til Akureyrar líkt og litháensku félagar hans Stropus og Mindaugas sem eru að spila með litháenska landsliðinu á sama tíma. Litháen á heldur betur erfiða leiki framundan, gegn Frökkum og Norðmönnum.

En við bjóðum Igor velkominn til Akureyrar og hlökkum til að sjá hann leika listir sínar.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson