Warning: Undefined variable $udleiks in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 16
Leikur dagsins: Akureyri - Stjarnan - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Þetta verður fyrsti leikur Stjörnunnar í KA heimilinu síðan 11. mars 2008

10. nóvember 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Akureyri - Stjarnan

Íslenska landsliðið í handknattleik var í sviðsljósinu um síðustu helgi og raunar alla vikuna þar á undan. Fyrir vikið var gert tveggja vikna hlé á Olís deildinni en í dag, fimmtudag verður þráðurinn tekinn upp á nýjan leik og um leið hefst annar hluti deildarkeppninnar. Akureyri fær Stjörnuna í heimsókn í KA heimilið og ljóst að í boði eru gríðarlega mikilvæg stig fyrir bæði lið þannig að það verður engin lognmolla yfir þeim leik.

Liðin mættust í Garðabænum í fyrstu umferðinni þann 10. september og eftir hörkuleik fór Stjarnan með þriggja marka sigur, en þeir skoruðu einmitt þrjú síðustu mörk leiksins. Á lokakaflanum var það markvörðurinn knái, Sveinbjörn Pétursson sem lokaði markinu og tryggði sínum mönnum stigin. Sveinbjörn lék sem kunnugt er með Akureyri áður en hann fór í víking til Þýskalands og á flest öll félagsmet Akureyrar sem snúa að markvörslu.

Hér má sjá áhugaverða tölfræði Sveinbjörns með Akureyrarliðinu.


Sveinbjörn ver hér eitt af 55 vítum sínum með Akureyrarliðinu og að sjálfsögðu skartar hann stuttbuxunum sem hann endurvakti sem hluta af markmannsbúningnum.

Nú þegar fyrsti þriðjungur Olís deildarinnar er að baki er áhugavert að líta á markahæstu menn Stjörnunnar en þar er efstur á blaði Ari Magnús Þorgeirsson með 43 mörk, línumaðurinn og vítaskyttan Garðar Benedikt Sigurjónsson með 38 mörk, Guðmundur Sigurður Guðmundsson með 30 og Andri Hjartar Grétarsson með 23 mörk. Þjálfari Stjörnunnar er reynsluboltinn Einar Jónsson sem m.a. gerði karlalið Fram að Íslandsmeisturum vorið 2013.

Akureyrarliðið hefur orðið fyrir miklum skakkaföllum með meiðsli það sem af er og spurning hversu vel landsleikjapásan hefur hjálpað mönnum að skríða saman á ný.

Markahæstu menn liðsins það sem af er tímabilsins eru Karolis Stropus 44 mörk, Andri Snær Stefánsson 39, Mindaugas Dumcius 37, Kristján Orri Jóhannsson 26 og Friðrik Svavarsson með 25 mörk.


Andri Snær, Friðrik og Stropus fagna marki í KA heimilinu í vetur

Stropus og Mindaugas voru með litháenska landsliðinu í hléinu þar sem Litháen vann góðan þriggja marka sigur á Norðmönnum en töpuðu fyrir Frökkum. Nýjasti liðsmaður Akureyrar, Úkraínumaðurinn Igor Kopyshynskyi var sömuleiðis upptekinn með sínu landsliði sem vann eftirminnilegan sigur á Íslandi um síðustu helgi. Raunar kom Igor ekkert inná í þeim leik. Þeir þremenningar komu til Akureyrar á þriðjudagskvöldið og eru vonandi í fínu standi eftir sín landsliðsverkefni.

Það var frábær stemming á síðasta heimaleik Akureyrar gegn FH og ekki að efast um að stuðningsmenn Akureyrar taka fullan þátt í leiknum gegn Stjörnunni sem hefst á hefðbundnum fimmtudagstíma, klukkan 19:00.

Eins og vanalega gerum við ráð fyrir að sýna leikinn beint á Akureyri TV og kemur linkur á útsendinguna hér á síðuna þegar nær dregur leiknum.

Merki Akureyrar á bílrúðuna og brjóstnælur í sparifötin

Þá minnum við á nýju bílrúðumerkin með Akureyrarmerkinu en hægt verður að kaupa þau í sjoppunni á leiknum, verð á þeim er aðeins 500 krónur. Auk þess eru til nokkrar glæsilegar brjóstnælur með Akureyrarmerkinu og verða þær einnig til sölu í sjoppunni á meðan birgðir endast.

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson