Warning: Undefined variable $udleiks in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 16
Morgunblaðið fjallar um Tomas Olason - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Tomas með frábæran leik í markinu

13. nóvember 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Morgunblaðið fjallar um Tomas Olason

Frammistaða markvarðarins Tomas Olason í leiknum gegn Stjörnunni fór ekki framhjá blaðamönnum og tók Morgunblaðið Tomas til sérstakrar umfjöllunar að lokinni 9. umferð Olís deildarinnar. Morgunblaðið spurði þjálfarann Sverre Jakobsson út í markvörðinn sem er hálfur Íslendingur og hálfur Dani.

„Við spiluðum að hluta til flotta vörn og hann varði mikilvæg skot. Við höfum oft verið að horfa til þess að markvarslan hjá okkur nái að vera fimmtán skot í leik og meira. Hann braut þann múr í þessum leik en við höfum reynt að vinna í því að ná markvörslunni upp um eitt þrep ef svo má segja. Tomas og Arnar Þór Fylkisson hafa unnið gríðarlega vel saman í umsjón Bjössa,“ sagði Sverre og vísar þar til Björns Björnssonar sem handboltaunnendur ættu að muna eftir í markinu hjá KA á tíunda áratugnum.

„Bjössi kom inn í þjálfunina hjá okkur fyrir tæpum tveimur mánuðum til að hjálpa okkur með markmannsþjálfunina. Þetta er mikilvægur partur af leiknum og þarf að sinna vel en vill stundum gleymast. Ég held að það hjálpi markvörðunum okkar hiklaust og Bjössi er gríðarlega góð viðbót fyrir okkur. Ég reikna með að það hafi verið gaman fyrir hann að sjá frammistöðuna úr stúkunni í gær.“

Á íslenskan föður
Tomas missti úr fimm leiki vegna hnémeiðsla í haust og er tiltölulega nýbyrjaður að spila aftur. „Hann bítur á jaxlinn og hefur verið að komast hægt og rólega í form. Hann er einbeittur og allur af vilja gerður. Þegar menn eru tilbúnir til að leggja mikið á sig þá hljóta þeir að fá verðlaun fyrir það með einhverjum hætti og hann átti skilið að ná frammistöðu eins og gegn Stjörnunni,“ sagði Sverre en um síðasta veturinn er að ræða hjá Tomasi á Akureyri.
Hann hyggst flytjast aftur til Danmerkur næsta vor eftir fimm vetur á Íslandi.
Tomas á íslenskan föður og ákvað að koma til Íslands haustið 2012 eftir að hafa búið alla tíð í Danmörku. Tomas kynntist Andra Snæ Stefánssyni, hornamanni Akureyrarliðsins, í Danmörku og Andri viðraði þá hugmynd að Tomas kæmi til Íslands og spilaði með Akureyri.

Talar íslenskuna
Tomas gat bjargað sér á íslensku þegar hann kom og hefur aðlagast vel á Akureyri og hefur meðal annars sest á skólabekk í háskólanum í bænum.
„Tomas er fínn persónuleiki og mjög góður félagi í hóp. Hann hefur reynst okkur vel. Ásamt Arnari og Bjössa er hann að vinna í að markvarslan verði betri hjá okkur. Við þurfum á því að halda að hún verði aðeins betri og þeir eru mjög einbeittir í þeirri vinnu“, sagði Sverre Jakobsson ennfremur í samtali við Morgunblaðið.

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson