Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Hafþór Vignisson átti stórleik 10 mörk í leiknum11. febrúar 2017 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur: Góður bikarsigur á HK - myndir Það var ekta bikarstemming í Höllinni í gær þegar 2. flokkur Akureyrar tók á móti HK. Fjölmargir áhorfendur lögðu leið sína í Höllina til að hvetja strákana og fín stemming á pöllunum. Leikurinn var í járnum og skiptust liðin á að leiða framan af. Eftir átján mínútna leik var staðan 8-6 fyrir Akureyri en þá sofnaði klukkan á ritaraborðinu og varð töluverð töf á leiknum á meðan klukkumálunum var bjargað. HK náði í kjölfarið að jafna í 10-10 en Akureyri var sterkara á lokasprettinum og skoraði þrjú síðustu mörk fyrri hálfleiksins þannig að staðan var 13-10 í hálfleik. Akureyri hélt frumkvæðinu áfram í seinni hálfleiknum en erfiðlega gekk að hrista HK liðið af sér. Það var ekki fyrr en stutt var til leiksloka að Akureyri náði fimm marka forskoti, 27-22 og sigurinn í höfn. HK menn klóruðu þó í bakkann með tveim síðustu mörkum leiksins þannig að lokastaðan varð 28-25 og strákarnir þar með komnir í fjögurra liða úrslit bikarkeppninnar.Brosmildir piltar eftir góðan sigur
Mörk Akureyrar: Hafþór Vignisson 10, Heimir Pálsson 6, Daði Jónsson 4, Kristján Garðarsson 4, Vignir Jónsson 2, Aron Tjörvi Gunnlaugsson 1 og Sigþór Gunnar Jónsson 1 mark. Arnar Þór Fylkisson stóð í markinu og varði vel, þar af tvö vítaköst.Mörk HK: Elías Björgvin Sigurðsson 7, Bjarki Finnbogason 6, Kristján Ottó Hjálmsson 4, Pálmi Fannar Sigurðsson 3, Ársæll Ingi Guðjónsson og Kristófer Dagur Sigurðsson 2 mörk hvor, Jósef Samir 1 mark.Hér má sjá myndir Hannesar Péturssonar frá leiknum .Ungmennalið Akureyrar mætir svo meistaraflokki HK í 1. deildinni í dag og viðbúið að þar verði margir sömu strákanna mætti á ný. Sá leikur hefst klukkan 13:30 í Íþróttahöllinni.
Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook