Warning: Undefined variable $udleiks in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 16
Útileikur gegn ÍBV í dag, sýndur beint á ÍBV-TV - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur

29. mars 2017 - Akureyri handboltafélag skrifar

Útileikur gegn ÍBV í dag, sýndur beint á ÍBV-TV

Akureyrarliðið heldur til Vestmannaeyja á miðvikudaginn þar sem liðið mætir heimamönnum klukkan 18:00. Eyjamenn hafa verið á rosalegu skriði í undanförnum leikjum unnið síðustu sjö leiki í deildinni og það afar sannfærandi. Skemmst er að minnast að þeir niðurlægðu Hauka í síðustu umferð en þeim leik lauk með sautján marka sigri ÍBV.

Liðin hafa mæst tvisvar í vetur, fyrri leikurinn var í Eyjum og þar fóru heimamenn með eins marks sigur 25-24 eftir mikinn darraðardans á lokasekúndunum.
Ekki var spennan minni í leiknum hér fyrir norðan sem lyktaði með jafntefli þar sem ÍBV skoraði lokamark leiksins.

Vissulega hafa Eyjamenn endurheimt sterka leikmenn frá áramótum en rimmurnar á milli liðanna í vetur og raunar síðasta tímabil líka hafa verið hörkuspennandi og því engin ástæða til að ætla annað en að skemmtilegir hlutir geti gerst.

Vestmannaeyingar ætla að sýna leikinn á ÍBV-TV
Smelltu hér til að fylgjast með leiknum.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson