Knattspyrnufélag Akureyrar (KA), Íþróttafélagið Þór (Þór) í samvinnu við Handknattleikssamband Íslands (HSÍ) hafa komist að samkomulagi um lok á samstarfi félaganna við rekstur meistaraflokks karla í handknattleik.
Þór mun alfarið sjá um rekstur Akureyri handboltafélags og KA mun senda eigið lið til keppni.
Akureyri Handboltafélag og KA munu því bæði taka þátt í keppni í 1. deild að ári.
Jafnframt munu félögin senda sameiginleg lið til keppni í kvennastarfi undir nafni KA/Þór.
Bæði félögin þakka HSÍ fyrir þeirrar aðkomu að málinu og óska hvort öðru velfarnaðar við uppbyggingu handboltans á Akureyri.Akureyri 16. maí 2017
Hrefna G. Torfadóttir
Fyrir hönd KA:
Árni Óðinsson
Fyrir hönd Þórs:
Guðmundur B. Ólafsson
Fyrir hönd HSÍ