Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15 Akureyri yfirgaf botnbaráttuna með sigri á Nesinu - Akureyri Handboltafélag
Dómarar: Bjarni Viggósson og Jón Karl Björnsson. Eftirlitsdómari Kristján Halldórsson
Umfjöllun
Tengdar fréttir
Bergvin fór á kostum
13. desember 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar
Viðtöl eftir sigurleikinn gegn Gróttu
Það var aðeins einn leikur í Olís deildinni í gær og því athygli fjölmiðlanna á Seltjarnarnesinu í gærkvöldi. Hér á eftir eru viðtöl sem birtust á RÚV, mbl.is og visir.is. Byrjum á umfjöllun Einar Arnar Jónssonar á RÚV.
Á mbl.is ræddi Ívar Benediktsson við þjálfarana Sverre og Gunnar Andrésson.
Sverre: Allir sigrar eru sætir
„Allir sigrar eru sætir en þeir eru enn sætari í svona jöfnum leik,“ sagði Sverre Andreas Jakobsson, þjálfari Akureyrar, eftir nauman sigur á Gróttu, 29:28, í Olís-deild karla í handknattleik í Hertz-höllinni á Setljarnarnesi í dag. „Þetta var 50/50 leikur enda voru liðin jöfn að stigum áður en flautað var til leiks. Við áttum von á jöfnum leik og auðvitað er alltaf von um sigur,“ sagði Sverre ennfremur en með sigrinum færðist Akureyrarliðið upp í sjötta sæti deildarinnar, hefur nú 16 stig. Grótta féll niður í sjöunda sætið og er tveimur stigum á eftir. „Leikmenn liðsins hafa tekið miklum framförum á ýmsum sviðum á síðustu vikum. Þeir hafa eflst við hverja raun."
Gunnar: Vonbrigði að fá ekki annað stigið
Gunnar Andrésson, þjálfari Gróttu, var eðlilega vonsvikinn eftir að hafa tapað fyrir Akureyri með eins marks mun, 29:28, á heimavelli í dag í Olís-deild karla í handknattleik. „Eftir jafnan leik eru það vonbrigði að fá ekki annað stigið en því miður þá er þetta ekki í fyrsta skipti í vetur sem við töpum svo naumlega í jöfnum leikjum,“ sagði Gunnar en Grótta féll niður um eitt sæti við tapið. Upphafskafli leiksins var slakur af hálfu Gróttu og um skeið voru Akureyringar með þriggja marka forskot. „Sóknarleikurinn var bara lélegur hjá okkur fyrsti 12 til 15 mínútur leiksins. Menn tóku margar rangar ákvarðanir en síðan unnum við okkur inn í leikinn og náðu að jafna metin fyrir hálfleik,“ sagði Gunnar. „Við sýndum ekki nógu mikinn aga á lokakaflanum þegar við vorum manni fleiri og misstum boltann nokkrum sinnum það er dýrt. En þegar litið er yfir síðari hálfleikinn í heild þá vantaði okkur alveg markvörslu. Ég held að markmenn okkar hafi varið tvö skot. Auk þess þá fannst mér margt í dómgæslunni orka tvímælis og ekki falla með okkur,“ sagði Gunnar. „Við eigum erfiðan útileik í næstu viku gegn ÍR. Þá eigum við tækifæri til þess að bæta upp fyrir vonbrigðin að þessu sinni,“ sagði Gunnar Andrésson, þjálfari Gróttu.
Gunnar var ekki eins brosmildur í gær og þegar liðin mættust á Akureyri
Á visir.is ræddi Kristinn Páll Steinsson við mann leiksins, Bergvin Þór Gíslason og þjálfarana Sverre og Gunnar.
Bergvin: Alltof tæpt hérna undir lokin
„Þetta var mjög sætt verð ég að segja, þetta var allt of tæpt hérna undir lokin,“ sagði Bergvin Þór Gíslason, sáttur að leikslokum. „Við vorum með tveggja marka forskot þegar mínúta var eftir og vorum að henda frá okkur boltanum. Við vorum stálheppnir að missa þetta ekki niður í jafntefli. Það var þrautseigja sem skilaði þessu.“
Í stað þess að missa hausinn þegar fjórar mínútur voru eftir og Akureyri missti mann af velli stigu leikmenn liðsins upp. „Við sýndum mikinn karakter á þeim kafla og sýndum þroskamerki. Við töpuðum á móti þessu liði á heimavelli með sex mörkum og vorum algjörlega glórulausir í þeim leik. Ég myndi segja að það væri stígandi í leik okkar þessa stundina.“
Bergvin fór sjálfur á kostum í leiknum en hann skoraði 13 mörk úr aðeins 16 skotum. „Ég er auðvitað bara ánægður. Ég var búinn að lofa félaga mínum að fara yfir tíu stiga múrinn og það tókst í dag svo ég er sáttur.“
Bergvin hafði svo sannarlega ástæðu til að brosa í leikslok. Mynd: mbl.is/Eva Björk
Sverre: Strákarnir eiga skilið risastórt hrós
„Að mínu mati var allur leikurinn spennandi. Þessi lið voru jöfn að stigum fyrir leikinn og hafa verið að spila mun betur undanfarnar vikur,“ sagði Sverre Andreas Jakobsson, þjálfari Akureyrar, aðspurður hvernig lokamínúturnar hefðu verið á hliðarlínunni í dag. „Þetta er erfiður völlur heim að sækja og ég tek stigunum tveimur fagnandi. Gróttumenn hafa verið að spila mjög vel undanfarnar vikur.“
Sverre sá bæði jákvæða og neikvæða punkta í leiknum. „Þetta var mjög flottur leikur að mörgu leyti en það er margt sem þarf að skoða betur. Þetta var þannig leikur, það var mikið í húfi og tvö jöfn lið að mætast. Það kom mér ekki á óvart að þetta vannst á aðeins einu marki,“ sagði Sverre og bætti við: „Ég get ekki kvartað undan því að skora 29 mörk í leik, það er kannski helst varnarleikurinn sem hægt er að setja út á. Ég get hinsvegar ekki kvartað undan strákunum, þeir eiga risastórt hrós skilið eftir þetta.“
Hann var ánægður með viðbrögð liðsins þegar þeir léku manni færri undir lok leiksins. „Maður hélt að þetta yrði kannski vendipuktur fyrir þá en þetta varð þess í stað vendipunktur fyrir okkur og tryggði okkur sigurinn. Við þiggjum þetta með bros á vor,“ sagði Sverre léttur að lokum.
Sævar Árnsson fagnar með Sverre í leikslok. Mynd: mbl.is/Eva Björk
Gunnar: Nokkrir dómar hérna undir lokin alveg út úr kortinu
„Við erum helvíti fúlir, það tekur tíma að melta þetta tap,“ sagði Gunnar Andrésson, þjálfari Gróttu, hundsvekktur að leikslokum. „Mér fannst sóknarlega fyrsta korterið við vera lélegir en þegar upp er staðið erum við með tvö varin skot í seinni hálfleik og það er erfitt að vinna leiki með.“
Leikurinn var kaflaskiptur en í fyrri hálfleik leiddi Akureyri lengst af en í seinni hálfleik voru Seltirningar yfirleitt með forystuna án þess að ná að hrista gestina frá sér. „Varnarlega vorum við allt í lagi en það vantaði alltaf herslumuninn og þeir náðu alltaf að svara. Það á oftast að duga að skora 27 mörk til þess að vinna leiki en við fengum allt of fá auðveld mörk í leiknum í dag og það telur mikið.“
Gunnar var fámæltur þegar kom að dómgæslunni undir lok leiksins en hann virtist vera ósáttur. „Mér fannst nokkrir dómar hérna undir lokin alveg út úr kortinu en ég ætla ekki að tjá mig meira um það,“ sagði Gunnar sem sagði það jákvætt að hafa verið jafn nálægt því að stela sigrinum þrátt fyrir að hafa ekkert leikið neitt frábærlega í dag. „Fyrsta upplifun eftir leikinn er að við höfum aldrei náð að spila okkar besta leik. Við getum tekið það jákvætt úr þessu að þrátt fyrir hafa spilað svona vorum við inn í þessu allan tímann.“
Andri Snær var besti leikmaður Akureyrar í tapinu árið 2010
11. desember 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar
Andri Snær með 8 mörk gegn Gróttu árið 2010
Akureyri mætir Gróttu á Seltjarnarnesi á morgun í mikilvægum leik en liðin eru jöfn að stigum og er þetta næstsíðasti leikur liðanna fyrir jóla og EM frí.
Liðin mættust einnig á Seltjarnarnesi þann 21. mars 2010 og fóru Gróttumenn þá með 29-26 sigur af hólmi. Andri Snær Stefánsson var besti maður Akureyrar í leiknum og skoraði 8 mörk úr 8 skotum og var ákaflega öruggur á vítalínunni þar sem hann skoraði 6 mörk.
Gróttumenn eru erfiðir heim að sækja
11. desember 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar
Útileikur gegn Gróttu á laugardaginn
Akureyri mætir á Seltjarnarnesið og leikur gegn Gróttu í síðasta útileiknum fyrir jólafrí. Liðin eru jöfn að stigum og því eru stigin tvö gríðarlega mikilvæg í þessari jöfnu deild.
Byrjun Gróttumanna í deildinni var erfið en upp á síðkastið hafa þeir reynst mörgum liðum erfiðir og má segja að sigur þeirra hér á Akureyri í október hafi verið upphafið á viðsnúningi þeirra. Þeim leik lauk með sex marka sigri Gróttu og óhætt að segja að Akureyringar gráti þau töpuðu stig í dag.
En það verður ekki af Gróttu tekið að þeir eru með hörkulið. Heimavöllurinn hefur reynst þeim drjúgur, þeir unnu Fram í síðustu umferð, 28:24 sömuleiðis hafa þeir unnið Víkinga, Aftureldingu og ÍR í deildinni og FH í bikarnum. Þá gerðu þeir góða ferð til Vestmannaeyja og unnu ÍBV sannfærandi á útivelli 26:31. Allt þetta eftir sigurinn á Akureyri í október.
Akureyrarliðið hefur verið á býsna góðu róli undanfarið og það er því sannarlega verðugt verkefni fyrir Akureyri að mæta á Seltjarnarnesið á laugardaginn og kvitta fyrir tapið fyrr í vetur.
Því miður þá verður leikurinn ekki í útsendingu hjá RÚV en við hvetjum að sjálfsögðu alla sem eiga kost á til að mæta á Nesið á laugardaginn og styðja Akureyri til sigurs enda mikilvægt að sækja sem flest stig fyrir jóla og EM fríið.
Við verðum svo að sjálfsögðu með textalýsingu frá leiknum hér á heimasíðunni.