Grótta - Akureyri 28-29, svipmyndir
12. desember 2015
Grótta tók á móti Akureyri í 17. umferð Olís deildar karla þann 12. desember 2015. Liðin voru jöfn að stigum fyrir leikinn og voru mikilvæg stig í boði enda myndi liðið sem færi með sigur af hólmi kveðja botnbaráttuna og blanda sér hressilega í baráttuna fyrir miðri deildinni.
Eftir hörkuleik þar sem liðin skiptust á að leiða fóru gestirnir frá Akureyri með sigur af hólmi, 28-29. Bergvin Þór Gíslason fór á kostum fyrir gestina og gerði 13 mörk.
Myndefni fengið úr fréttatíma RÚV.