Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15 Akureyri slær út ÍR2 (umfjöllun) - Akureyri Handboltafélag
Hreiðar Levý Guðmundsson spilaði fyrri hálfleikinn með slöku liði Akureyrar og varði 10 skot í hálfleiknum. Við spjölluðum við Hreiðar eftir leikinn og fengum hans töku á þessum leik en Hreiðari var ekki skemmt í kvöld.
SÁ: Hreiðar, hvað getur þú sagt okkur um bikarleikinn í kvöld? Hreiðar: Í hreinskilni var þetta bara ömurlegt, ég nenni ekkert að vera að skafa af því. Maður var orðinn syfjaður inná vellinum.
SÁ: Það jákvæða er náttúrulega að þið eruð komnir áfram? Hreiðar: Já, það er fyrir öllu. Það hefði í raun engu skipt hvort við hefðum unnið þá með 7, 15 eða 1 marki.
SÁ: Spilamennskan, fannst þér hún merkileg? Hreiðar: Hún var ömurleg. Það er eiginlega bara orð dagsins, ömurlegt. Einbeitingin, greddan og allur þessi pakki var ekki til staðar. Þá detta menn á hælana og menn ætla að spara sig fyrir sunnudaginn.
SÁ: Voru menn komnir með hugann við sunnudaginn? Hreiðar: Já, held að undir niðri hafi menn verið að spara sig.
SÁ: Hvernig leggst þessi HK leikur í þig? Hreiðar: Það er ekkert annað en sigur sem við eigum að stefna á. Erum á heimavelli og vonandi verður fullt af fólki en við verðum að halda heimavellinum ósigruðum.
SÁ: Miðað við spilamennsku beggja liða hingað til í vetur, er þetta þá ekki bara stærsti leikur vetrarins til þessa? Hreiðar: Jú, jú. Stjörnuleikurinn var það seinast og næsti leikur er einhvern veginn alltaf stærsti leikurinn. Sérstaklega þegar þetta er orðið svona jafnt, við með jafnmörg töpuð stig og í toppbaráttunni eins og er þá er næsti leikur alltaf stærstur.
SÁ: Hvað þarf að gerast á sunnudaginn til þið náið að vinna? Hreiðar: Það er bara sama. Vörn, markvarsla, vonandi fáum við hraðaupphlaup og vonandi slípast sóknarleikurinn og verður betri.
SÁ: Áhorfendur, hafa þeir mikið að segja? Hreiðar: Já geðveikt. Það hjálpar endalaust til. Stressar líka hina, hvetur okkur áfram og þegar illa gengur rífa þeir okkur upp.
Við þökkum Hreiðari fyrir og óskum honum og Akureyrarliðinu gríðarlega góðs gengis á sunnudaginn.
Eftir leikinn við ÍR2 tók heimasíðan viðtal við hinn eina sanna Finn Jóhannsson sem allir handknattleiksunnendur ættu að kannast við. Finnur, sem á góðan kvikmyndaferil að baki, átti stórleik og setti 7 mörk í leiknum. Við skulum skoða hvað Finnur hafði að segja.
SÁ: Bikarkeppnin með ÍR2 í vetur, var þetta betra en Blossi um árið? Finnur: Já, þetta er málið. Ég er ótrúlega svekktur samt að detta út. Ég vil meina að við höfum selt okkur alltof ódýrt en svona er sportið.
SÁ: Varstu sáttur með viðtökurnar sem Blossi fékk á sínum tíma? Finnur: Veistu það að ég bara man ekki hvernig það var! En Blossi, það er cult í dag.
SÁ: Varstu sáttur með spilamennskuna hjá ykkur í dag? Finnur: Já, já. Við vorum alveg sáttir með spilamennskuna. Við héldum í við þá í seinni hálfleik. Ég vil kenna þessu um lélegum undirbúningi og basically ferðalaginu hingað. Menn voru að mæta alltof seint í leik og það er ferðaþreytan sem ég vil kenna um.
SÁ: Þannig að undir eðlilegum kringumstæðum ættuð þið þá að vinna? Finnur: Undir eðlilegum kringumstæðum hefðum við trúlega unnið!
SÁ: Þið verðið þá bara að einblína á utandeildina í vetur? Finnur: Það er bara stefnt á sigur í deildinni og ekkert annað.
Við þökkum Finni kærlega fyrir en ekki væri leiðinlegt að sjá hann aftur á hvíta tjaldinu.
Hvort kemst Akureyri eða ÍR2 í 8-liða úrslit SS-Bikarsins?
Leikur Akureyrar og ÍR2 í 16-liða úrslitum SS-Bikarsins fer fram í kvöld í KA-Heimilinu klukkan 18:30. Það skiptir gríðarlega miklu máli fyrir Akureyri að sigra og komast þar með í 8-liða úrslitin en nú þegar hafa lið eins og Valur og HK fallið úr leik. Heimasíðan býður upp á beina textalýsingu frá leiknum í kvöld og hvetur hún alla til að fylgjast vel með gangi mála ef það kemst ekki á leikinn. Mjög auðvelt er að fylgjast með í gegnum Beinu Lýsinguna.
Beina Lýsingin opnast í nýjum glugga sem uppfærist af sjálfu sér á 15 sekúndna fresti. Það er því ekkert mál að fylgjast með. Leikurinn hefst eins og fyrr kom fram klukkan 18:30 en við hvetjum alla til að fylgjast vel með.
Bjartur Máni: Mjög gaman að snúa aftur í KA-Heimilið
Á morgun (fimmtudag) tekur Akureyri Handboltafélag á móti stórliði ÍR2 í 16-liða úrslitum Bikarkeppninnar. Í liði ÍR2 er hinn öflugi leikmaður Bjartur Máni Sigurðsson sem lék með KA 2003-2006. Bjartur hefur verið að leika óaðfinnanlega með ÍR2 í Bikarnum og í Utandeildinni og ákvað heimasíðan að fá kappann í viðtal.
ÁS: Jæja Bjartur Máni, nú ert þú að koma aftur í KA-Heimilið. Hvernig leggst það í þig? Bjartur: Það er mjög gaman að snúa aftur í KA-heimilið enda kann ég vel við að spila þar. Þar hef ég spilað marga góða leiki og unnið með mörgum af bestu handboltamönnum landsins eins og Þorvaldi Þorvaldssyni, Arnóri Atlasyni, Jonna Magg, Andreusi Stelmokas, Andra Snæ Stefánssyni og Hreiðari Guðmundssyni.
ÁS: Það eru einhverjar stjörnur í liðinu ykkar, hverjar eru þær? Bjartur: Þar má nefna Finn Jóhannsson, Magnús Má Þórðarson, Óla Gylfa, Þorkel Guðbrandsson, Hrafn Margeirsson, Andra Úlfarsson, Fúsa, Erlend Stefánsson, Jóhann Ásgeirsson (stóri bróðir Stulla), Róbert Rafnsson, Sævar Ríkharðsson, Frosta Guðlaugsson og Bjart Mána Sigurðsson. Það eru um það bil 400 leikir í efstudeild að meðaltali á mann, ég dreg meðaltalið aðeins niður.
ÁS: Þið sláið út Víking/Fjölni og svo eruð þið með fullt hús í Utandeildinni, þið mætið væntanlega fullir sjálfstrausts í leikinn? Bjartur: Það er rétt að okkur hefur gengið vel undanfarið en við erum að sjálfsögðu litla liðið í þessum bikarslag sem sést best á því að við urðum að selja leikinn norður. Þetta var reynslusigur á móti ungum og efnilegum Víkingum/Fjölnismönnum. Það vantar hinsvegar ekki reynslu í lið Akureyrar sem segir mér að leikurinn gegn þeim verði erfiðari en á móti Víking/Fjölni. Ég segi ekki að við séum að rifna úr sjálfstrausti fyrir þennan leik.
ÁS: Nú hefur þú verið að skora grimmt fyrir ÍR2, ertu í fínu formi um þessar mundir? Bjartur: Já, boltinn hefur verið að fara inn í markið þegar ég kasta í áttina að því. Það er mjög ánægjulegt enda eitt af meginmarkmiðum leiksins, að skora mörg mörk og sjá til þess að andstæðingarnir skori færri.
Nei, ég get ekki sagt að ég sé í góðu formi. Ég hef sama og ekkert æft síðan ég sagði skilið við KA, smá fótbolti í sumar kannski en ekki mikið. Við æfum einu sinni í viku í ÍR2 (fótbolti) ef er leikur í utandeildinni þá er hann spilaður í æfingatímanum klukkan 22:00 á þriðjudögum í Seljaskóla (fyrir þá sem hafa áhuga).
ÁS: Nú sameinuðust KA og Þór eftir að þú ferð frá KA, hvernig lýst þér á sameininguna? Bjartur: Ég held að ég eigi aldrei eftir að venjast því að sjá Valda í ÍR búningi, þó að ég vildi hafa hann í ÍR með mér. Það er vonandi að sameiningin verði til þess að DOLLAN fari norður, væntanlega hafa menn úr meiru að moða núna. Það er söknuður af grannaslagnum enda tapaði ég varla fyrir Þór.
ÁS: Hvernig spáir þú leiknum? Bjartur: Ég spái 10 - 15 marka sigri Akureyringa, það var grís að vinna Víking/Fjölni. Það kemur ekki fyrir á Akureyri, þar eru menn með reynslu til að klára svona leiki. Ég veit að það getur verið erfitt að ná upp stemningu en ég held að það skipti ekki máli, þeir eru einfaldlega miklu betri en við og taka þetta frekar létt. Annað kæmi mér verulega á óvart.
Við þökkum Bjarti kærlega fyrir viðtalið og bendum öllum á að mæta í KA-Heimilið á morgun klukkan 18:30 til að sjá endurkomu Bjarts Mána í KA-Heimilið.
Stórleikur morgundagsins sem er á milli Akureyrar og ÍR2 í 16-liða úrslitum SS-Bikarsins verður í Beinni Lýsingu hér á heimasíðunni. Liðið sem sigrar mun komast áfram í 8-liða úrslit keppninnar og þá er ekki mikið eftir. Heimasíðan hvetur alla til að mæta í KA-Heimilið til að sjá leikinn en þið sem komist ekki getið fylgst með Beinu Lýsingunni.
Á fimmtudaginn tekur Akureyri Handboltafélag á móti ÍR2 í 16-liða úrslitum SS-Bikarsins. Leikurinn átti upphaflega að fara fram fyrir sunnan en hann var færður yfir til Akureyrar. Ljóst er að lið ÍR2 er sýnd veiðin en ekki gefin þar sem liðið er skipað þekktum leikmönnum og liðið hefur verið að spila vel á tímabilinu.
ÍR2 gerði sér lítið fyrir og sigraði Víking/Fjölni í 32-liða úrslitunum. ÍR2 byrjaði leikinn strax af krafti og leiddi 19-14 í hálfleik. Í seinni hálfleik hélt liðið svo bara út og sigraði 34-32. Ljóst er að mikið afrek er hjá liðinu að slá út Víking/Fjölni sem er að leika í 1. deildinni.
Þá er ÍR2 einnig að leika í Utandeildinni og leikur í A-riðli. Liðið hefur unnið fyrstu þrjá leiki sína og alla mjög öruggt. Þeir sigruðu FH 33-25 í fyrsta leik, þá HR 32-48 og í síðasta leiknum unnu þeir Val C 33-22.
Bjartur Máni Sigurðsson fyrrum leikmaður KA er að fara á kostum með liðinu en hann var markahæstur gegn Víking/Fjölni með 8 mörk og þá skoraði hann 10 mörk gegn FH í Utandeildinni. Finnur Jóhannsson leikur einnig með ÍR2 en það er sko öflugur leikmaður sem lék til að mynda með Val og ÍR á sínum tíma.
Það er ljóst að leikur ÍR2 við Akureyri verður stærsti leikur ÍR-inga í vetur og alveg klárt mál að þeir munu gefa sig alla í leikinn.
Akureyri - ÍR2, KA-Heimilið 16. nóvember 2006 klukkan 18:30
Leikurinn verður að sjálfsögðu í Beinni Lýsingu hér á síðunni en við hvetjum alla til að mæta á leikinn sem verður hin besta skemmtun.
Jankovic var markahæstur í fyrsta bikarleik Akureyrar þetta tímabilið
Bikarleikur Akureyrar við ÍR2 í 16-liða úrslitum SS-Bikarkeppninnar verður leikinn hér á Akureyri en sem kunnugt er drógust ÍR2 á heimavelli. Leikurinn fer fram í KA-Heimilinu 16. nóvember klukkan 18:30. Bikarkeppnir eru stuðkeppnir og spurning hvort mikið bikarævintýri þetta árið sé að fara að halda áfram hjá Akureyri eftir sigur á Selfoss í 32-liða úrslitum.
Dregið var í 16-liða úrslit SS-Bikars karla nú rétt í þessu og dróst lið Akureyrar Handboltafélag gegn liði ÍR2. ÍR2 hefur heimaleikjaréttinn en í liði ÍR2 leikur meðal annars Bjartur Máni Sigurðsson sem lék með KA á síðustu leiktíð. Ljóst er að ÍR2 er þægilegur andstæðingur en þó ber að varast vanmat þar sem liðið sló út Víking/Fjölni í 32-liða úrslitum.
Leikið verður væntanlega 15. nóvember og þá í Austurbergi. Önnur lið sem voru í pottinum voru Íslandsmeistarar Fram, Bikarmeistarar Stjörnunnar, Deildarbikarmeistarar Hauka, Fylkir, ÍR, Valur, Höttur, ÍBV, FH 2, Haukar U, Leiknir 2, Stjarnan 2 og Þróttur Vogum.
Hverjir verða mótherjar Akureyrar í 16-liða úrslitum SS-Bikarsins?
Miðvikudaginn 1. nóvember verður dregið í 16-liða úrslitum SS-Bikars karla. Lið Akureyrar Handboltafélags verður að sjálfsögðu í pottinum. Nú kemst ekkert lið sjálfkrafa áfram, en Íslandsmeistarar Fram komust sjálfkrafa áfram í gegnum 32-liða úrslitin.
Af þeim 16 liðum sem enn eru í bikarnum eru 7 í DHL-Deild karla. Það eru: Akureyri, Fram, Fylkir, Haukar, ÍR, Stjarnan og Valur.
Tvö lið eru úr 1. deild karla en það eru Höttur og ÍBV.
Restin af liðunum leika annaðhvort í utandeildinni eða bara í bikarkeppninni en það eru: FH 2, Haukar U, ÍR 2, Leiknir 2, Stjarnan 2 og Þróttur Vogum.
Heimasíðan mun fylgjast grannt með hvernig drátturinn verður en SS-Bikarinn er gríðarlega stór keppni eins og allir handboltaunnendur vita og það skiptir miklu máli að ná langt í bikarkeppninni.
Drátturinn verður í hádeginu 1. nóvember.
Leikirnir í 16-liða úrslitum SS-Bikarsins verða svo væntanlega spilaðir miðvikudaginn 15. nóvember.
Karlalið Akureyrar komst á dögunum áfram í SS-Bikar karla eftir 11 marka sigur á Selfyssingum. Liðið mun væntanlega spila 15. nóvember sinn leik í 16-liða úrslitum Bikarsins. Á laugardaginn komst hinsvegar einnig áfram lið Hattar frá Egilsstöðum. Í liði Hattar leika Akyreyringarnir Stefán Guðnason, Óðinn Stefánsson, Jónas Guðbrandsson og Sigurður Brynjar Sigurðsson.
Höttur sigraði Aftureldingu 2 nokkuð örugglega 26-29. Þetta var fyrsti sigur Hattar í alvöru leik. Þá komst einnig fyrrum leikmaður KA hann Bjartur Máni Sigurðsson áfram í bikarnum en hann leikur með ÍR 2. ÍR 2 gerði sér lítið fyrir og lagði Víking/Fjölni í leik þar sem Bjartur Máni skoraði 8 mörk og var markahæstur. Dregið verður í bikarnum á næstu dögum og verður virkilega gaman að sjá hverjir verða mótherjar Akureyrar.
Liðin í 16-liða úrslitum SS-Bikars Karla Akureyri ÍR 2 FH Stjarnan ÍR Valur ÍBV Fylkir Haukar Stjarnan 2 Haukar U FH 2 Leiknir 2 Höttur Þróttur