Í dag tekur Akureyri á móti toppliði Vals. Vel hefur verið mætt á leiki Akureyrar til þessa og hvetur heimasíðan alla til að mæta og hvetja Akureyri til sigurs. Mjög líklegt er að ef þú mætir verði tekin mynd af þér og hún birt hér á síðunni. Þórir Ólafur Tryggvason ljósmyndari tekur myndirnar hér að neðan sem eru úr leik Akureyrar og HK um síðustu helgi. Leikurinn gegn Val hefst klukkan 16:00 í dag í KA-Heimilinu.
Akureyri - Valur, KA-Heimilið í dag klukkan 16:00
Sævar biður fólk að vera þolinmótt en fannst strákarnir samt ekki spila nógu vel gegn HK
HK vann Akureyri í gær 20-22. Við tókum Sævar Árnason annan þjálfara Akureyrar í viðtal í leikinn og spurðum hann út í hvað honum helst þætti hafa háð liðinu í dag. Sævar var ekki sáttur með leik liðsins en vildi þó ítreka að það tæki tíma að slípa saman nýtt lið.
SÁ: Þetta gekk ekki nógu vel í dag... Sævar: Nei, þetta var heilt yfir frekar lélegt og sennilega áttum við ekkert skilið að vinna.
SÁ: Hvað fannst þér mest að í leik liðsins? Sævar: Það var að sjálfsögðu sóknarleikurinn á löngum köflum. Við byrjuðum leikinn ágætlega, gagnstætt því sem við höfum verið að gera að undanförnu, en núna náðum við að halda jöfnu fram í miðjan fyrri hálfleik. Svo frís allt og við varla skorum mark seinustu 18 mínúturnar og það var rosalega erfitt.
SÁ: Þessi kaflaskipti í liðinu eru alltof mikil? Sævar: Þetta er náttúrulega langt frá því að vera nógu gott. Kannski þarf fólk að átta sig á því að við töluðum um það strax í sumar að þetta væri náttúrulega glænýtt lið, menn væru að spila sig saman og að þetta tæki tíma. Þetta hefur kannski gengið betur en menn héldu svona framan af en auðvitað erum við ennþá brotalamir. Liðið er náttúrulega ekki enn orðið samstillt. Það er hægt að hægt að berja saman góða vörn með reyndum og stórum mönnum en við þurfum bara meiri tíma til að slípa sóknina.
SÁ: Hvað þarf að breytast mest sóknarlega til að liðið fari að spila almennilega? Sævar: Við þurfum bara að vinna í okkar málum jafnt og þétt og bæta sóknarleikinn smám saman. Þetta kemur ekkert á einni nóttu held ég en við bara munum leggja áherslu á að bæta þetta.
SÁ: Þið hljótið að vera óánægðir að ná ekki að vinna með þetta mikið af fólki í húsinu? Sævar: Já, mjög óánægðir vegna þess að það var búið að gíra upp mikla stemmningu fyrir þennan leik. Reyndar fannst ég merkja það á mínu liði í fyrri hálfleik að menn hafi verið yfirspenntir. Að menn ætluðu að gera of mikið því menn ætluðu svo sannarlega að standa sig. Það er alveg eins slæmt að vera yfirspenntur og að finna sig ekki.
Við þökkum Sævari fyrir og óskum honum og Akureyri góðs gengis í stórleikjunum tveimur í þessari viku.
Leikur Akureyrar og HK mun fara fram klukkan 20:00 í kvöld í KA-Heimilinu. Leiknum var seinkað vegna ófærðar en nú er komið á hreint hvenær hann nákvæmlega verður.
Enn og aftur hvetjum við fólk til að mæta en leikurinn á eftir verður enginn smá leikur. Þá verður Bein Lýsing á síðunni fyrir þá sem ekki komast á leikinn.
Leikurinn verður í Beinni Lýsingu klukkan 16:00 fyrir þá sem ekki komast á leikinn sjálfan
Okkur er einstök ánægja að greina frá því að Akureyri - HK verður í Beinni Lýsingu hér á síðunni í dag.
Leikurinn hefst klukkan 16:00 í KA-Heimilinu og eru allir hvattir eindregið til að mæta á leikinn. Þeir sem hins vegar ekki komast geta fylgst með lýsingunni hér á síðunni.
Á morgun verður stórleikur í KA-Heimilinu þegar Akureyri mætir HK klukkan 16:00. Mikil eftirvænting er fyrir leiknum en Akureyri hefur verið að leika afar vel að undanförnu. Heimasíðan fékk Magnús Stefánsson í viðtal og spurðum við hann út í leikinn.
SÁ: Magnús, hvernig eru menn stemmdir fyrir leikinn gegn HK á morgun? Magnús: Menn eru bara mjög vel stemmdir, það er ekki hægt að segja annað. Þetta leggst bara afskaplega vel í okkur alla og er mikil stemmning búin að vera í hópnum undanfarið og mikil tilhlökkun.
SÁ: Já þegar vel gengur þá hlýtur andinn að vera hátt uppi? Magnús: Já, hann er alveg á toppnum núna og við búumst við mikið af fólki í húsið á morgun og þetta getur ekki orðið annað en besta skemmtun.
SÁ: HK liðið hefur verið að leika vel hingað til. Hvað þurfið þið að gera á morgun? Magnús: Við verðum að spila agaðan sóknarleik og enda það með skotum úr bestu færunum sem við finnum. Þeir eru með góðan markmann og fljóta menn fram á við. Við verðum bara að spila vel heilt yfir, það má hvergi slaka á.
SÁ: Heldur þú að þið eigið ekki örugglega að geta unnið HK? Magnús: Jú ekki nokkur spurning, það er alveg á hreinu. Það er ekkert sem segir okkur annað en við eigum að geta unnið.
SÁ: Áhorfendur? Magnús: Þeir koma til með að skipta mjög miklu máli núna og gera það svona heilt yfir. Það eru oft þeir sem kveikja í liðinu þegar illa gengur og þeir hvetja mann áfram.
SÁ: Þannig að þú vonast eftir fjölmenni? Magnús: Ég vonast til að sem flestir mæti og láti sjá sig og hafi gaman af. Þetta ætti að verða snilldar leikur.
Við hvetjum fólk enn og aftur að mæta á leikinn en það er óhætt að lofa gríðarlegri skemmtun að þessu sinni. Leikurinn hefst 16:00 í KA-Heimilinu á morgun, sunnudag.
2. flokkur Akureyrar lék sinn fyrsta heimleik í dag þegar liðið mætti HK en sem kunnugt er mætast meistaraflokkslið liðanna á morgun. Akureyri var yfir lengst af í leiknum, leiddi 13-8 í hálfleik og vann að lokum 29-25 sigur. Við skulum kíkja nánar á leikinn.
HK byrjaði leikinn betur og komst í 1-3. Akureyri kom þá með næstu þrjú mörk og leiddi 4-3 en eftir það komst HK aldrei yfir. Smám saman nær Akureyri yfirhöndinni og komast í 8-5. Fram af hálfleik bætti liðið aðeins við muninn og staðan í hálfleik Akureyri 13, HK 8. Þrátt fyrir fimm marka forskot Akureyrar var spilamennska liðsins ekkert sérstök en í sókninni vantaði allan kraft og var boltinn að ganga illa milli manna.
Seinni hálfleikur var mjög svipaður þeim fyrri nema að mörkin voru nokkuð fleiri. Akureyri leiðir 20-15 en næstu þrjú mörk voru frá HK og staðan orðin 20-18. Eftir það var munurinn 2-3 mörk og komst HK aldrei nær Akureyri en það en Akureyri vann að lokum 29-25 sigur.
Þrátt fyrir að HK hafi náð að minnka muninn í tvo mörk var sigur okkar stráka aldrei í hættu. Það virtist engu skipta þó liðið væri að leika slaka sókn eða ætti slaka kafla, HK liðið var einfaldlega ekki í nógu góðum klassa til að sigra leikinn. Strákarnir eiga mjög mikið inni miðað við þennan leik en fyrir það fyrsta vantar allan kraft og hraða í leik liðsins.
Þessir tveir verða að hafa vörnina í lagi eftir tvo daga
HK mætir til Akureyarar sunnudaginn næsta, 19. nóvember, og leikur við okkar menn 16:00 í KA-Heimilinu. Verið er að gefa frímiða í Sparisjóðnum og KEA en markmiðið er að fylla húsið á sunnudaginn.
Bæði lið hafa farið einkar vel af stað í vetur og má búast við algjörum toppleik á sunnudaginn. Liðin hafa bæði tapað þremur stigum í deildinni hingað til og gæti þessi leikur ráðið miklu í sambandi við framhaldið. HK er í öðru sæti deildarinnar og Akureyri í því þriðja. Með sigri í leiknum getur Akureyri komist upp fyrir HK og á leik inni. Sigri gestirnir í HK hins vegar eru þeir komnir í enn betri stöðu í baráttunni við Val á toppnum.
Tímabilið til þessa HK hefur leikið sex leiki til þessa í deildinni og er í 2. sæti deildarinnar einungis stigi á eftir Val. Liðið fór einkar vel af stað og vann fyrstu tvo leiki sína í deildinni, gegn Fylki og Stjörnunni. Svo gerði liðið jafntefli við Íslandsmeistara Fram en það var ekki fyrr en í fjórðu umferðinni sem liðið tapaði leik en þá lágu þeir fyrir toppliði Vals. Liðið reif sig upp eftir þann leik og vann bæði ÍR og Hauka. Í bikarnum gekk hins vegar ekki eins vel en þar datt HK út í 32-liða úrslitum fyrir bikarmeisturum Stjörnunnar.
HK liðið er með öflugan sóknarleik og marga góða leikmenn sem gera þar afar fína hluti. Varnarlega leikur liðið bæði 3-2-1 vörn og 6-0 en liðið hefur verið að spila báðar varnirnar mjög vel í vetur.
Árangur HK á seinustu leiktíð HK-liðið endaði í 7. sæti í fyrra í deildinni en þeir voru mun ofar lengi vel. Í bikarnum datt liðið út fyrir Haukum í 8-liða úrslitum en Haukar fóru í úrslitaleikinn.
Helstu leikmenn Valdimar Þórsson er ótrúlegur sóknarleikmaður en hann leikur bæði á miðju og í skyttu. Hann getur skorað flottustu mörk hvers leiks og mun vafalaust gera það á sunnudaginn. Þegar hann er í gírnum er hann einn besti sóknarmaður deildarinnar og getur farið upp fyrir 10 mörkin í markaskorun. Akureyri verður að stöðva Valdimar ætli þeir sér sigur.
Egidijus Petkevicius er kominn til liðsins eftir að hafa verið afar lengi á leiðinni. Petja er markmaður liðsins en hann lék áður með KA og varð Íslandsmeistari með liðinu meðal annars. Hann hefur verið að verja vel í vetur en hann er einn albesti markmaður deildarinnar. Akureyri hreinlega verður að finna leið framhjá Petkevicius, sem á það til að loka markinu, en hann var lykilmaður í Íslandsmeistaraliði Fram í fyrra.
Tomas Eitutis er öflug örvhent skytta sem getur reynst afar drjúgur detti hann í sitt besta form. Hann kemur frá Litháen og hefur verið að finna markið ágætlega í vetur.
Augustas Strazdas er aftur kominn til HK en hann lék með liðinu fyrir nokkrum árum. Strazdas, sem er frá Litháen, er öflugur leikmaður jafnt í vörn og sókn. Hann hefur þó verið að leika minna en menn gerðu ráð fyrir og segir það nokkuð um spilamennsku HK hingað til.
Ragnar Hjaltested er í hægra horninu en það er snöggur leikmaður sem hefur verið að skora mikið af mörkum fyrir HK í vetur.
Þá er línumaðurinn Sergey Petraytis í banni en hann hefur verið afar öflugur hingað til með liðinu og veikir það HK-liðið nokkuð.
Hvað þarf Akureyri að gera til að vinna HK? Fyrir það fyrsta þarf liðið náttúrulega algjöran toppleik. Vörn liðsins sem hefur verið að smella vel hingað til verður að vera til staðar, annars nær liðið ekki að vinna á sunnudaginn. Í 60 mínútur verða menn að vera á tánum varnarlega og láta finna vel fyrir sér. Haldi liðið áfram eins og það hefur verið að leika varnarlega hingað til er lítið að óttast. Þá verður liðið að fá hraðaupphlaup út frá vörninni. Sóknarlega verður liðið að fara að spila betur og spila hraðar. Menn verða að vera ákveðnir og áragir en það hefur vantað svolítið í seinustu leikjum að menn séu á fullum krafti sóknarlega. HK liðið spilar bæði 3-2-1 vörn og 6-0 og verður Akureyri að vera tilbúið gegn báðum vörnum. Það er þó ekki það sem skiptir máli hvernig HK mun spila í þessum leik. Það sem skiptir öllu máli er að Akureyri nái sínum besta varnarleik á sunnudaginn og bæti sóknina. Ef það gerist mun liðið vinna HK.
Akureyri - HK, KA-Heimilið 19. nóvember klukkan 16:00
Allir Akureyringar, sem og aðrir, eru hvattir til að mæta og fylla húsið á sunnudaginn! Ég lofa gríðarlegri skemmtun og topphandboltaleik. Því miður verður leikurinn ekki í Beinni Lýsingu hér á síðunni og er það bara enn meiri ástæða fyrir að fólk mæti og styðji okkar menn.
KEA og Sparisjóðurinn hafa ákveðið í að fara í samstarf með Akureyri Handboltafélagi fyrir leikinn gegn HK á sunnudaginn. Fyrirtækin keyptu mikið af miðum á leikinn og getur þú lesandi góður nálgast miða á leikinn í boði KEA og Sparisjóðsins. Þú einfaldlega mætir annaðhvort í Sparisjóðinn eða í KEA og biður um miða á leikinn.
Leikur Akureyrar og HK á sunnudaginn er gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið og því um að gera að mæta á leikinn og hvetja Akureyri til sigurs. Liðið hefur verið að leika ákaflega vel upp á síðkastið og er í góðri stöðu. HK hefur einnig verið að leika vel og því er um stórleik að ræða.
Akureyri - HK, KA-Heimilið 19. nóvember 2006 klukkan 16:00
Heimasíðan þakkar KEA og Sparisjóðnum kærlega fyrir framtakið og nú er bara að vona að fólk nýti sér þetta tækifæri á að komast frítt inn.
Það er svo sannarlega óhætt að segja að stór vika sé framundan hjá Akureyri. Liðið gerði sér lítið fyrir og vann Stjörnuna í Ásgarði á sunnudaginn var og segja má að prógrammið næstu daga sé mikið og þétt. Eins og fram hefur komið á heimasíðunni í dag þá leikur liðið við ÍR2 í 16-liða úrslitum SS-Bikarsins en leikurinn verður næstkomandi fimmtudag, 16. nóvember, klukkan 18:30.
Mikilvægi bikarkeppninnar er gríðarlegt og það að ná að vinna hana er eitthvað sem þykir afar merkilegt og lifir með mönnum um ókomna tíð. Akureyri getur með sigri í leiknum komið sér meðal þeirra 8-liða sem eftir eru og þá eru einungis þrír leikir eftir, svo mikið er í húfi.
Á sunnudaginn næsta, 19. nóvember, verður svo algjör stórleikur í DHL-Deildinni þegar HK kemur í KA-Heimilið og mætir okkar mönnum. HK-liðið hefur farið einkar vel af stað í deildinni og er sem stendur í 2. sæti deildarinnar aðeins stigi á eftir toppliði Vals en HK hefur tapað jafnmörgum stigum og Akureyri. Leikurinn á sunnudaginn er því afar mikilvægur í toppbaráttunni og mun hafa gríðarlega mikið að segja þegar upp er staðið. Því er gríðarlega mikilvægt að fólk mæti og styðji Akureyri til sigurs því þetta er með stærri heimaleikjum liðsins í vetur.
Ef Akureyri sigrar HK er Akureyri komið í annað sæti og á enn leik til góða á HK og Val.