- () klukkan: Dómarar:
Umfjöllun Andri Snær var markahæstur í dag30. janúar 2009 - Akureyri handboltafélag skrifarSlæm útreið gegn Val í gærkvöldi Akureyri fór enga frægðarför til Valsmanna í gærkvöldi. Fyrstu ellefu mínúturnar var leikurinn jafn og skemmtilegur, jafnt á öllum tölum og Akureyri í fínum málum. Í kjölfarið ná Valsmenn fjögurra marka forystu 9-5 og þar með virtist Akureyrarliðið missa hausinn. Valsmenn réðu lögum og lofum á vellinum og fóru með níu marka forskot 17-9 til leikhlés og svo virtist sem úrslitin væru ráðin. Jónatan skorar
Valsmenn héldu áfram í upphafi seinni hálfleiks og munurinn jókst hröðum skrefum allt upp í 30-15 en á þessum tíma endaði hver sóknin á fætur annarri á lélegum skotum sem Ólafur Gíslason markvörður Vals varði auðveldlega og skilaði boltanum trekk í trekk fram í hraðaupphlaup sem gáfu mörk. Það sem eftir lifði leiksins náði Akureyri að krafla lítillega í bakkann og lokatölur urðu 32-21 fyrir Val eftir að Hafþór markvörður skoraði síðasta mark leiksins, þvert yfir allan völlinn. Hörður Fannar þurfti að yfirgefa völlinn meiddur fljótlega í fyrri hálfleik og munaði mikið um fjarveru hans í vörninni og ekki síður í sókninni. Sigur Valsmanna var sanngjarn á meðan leikur Akureyrar var í heildina séð dapur. Vörnin sem hafði verið aðalsmerki liðsins var máttlaus og að sama skapi var engin grimmd í sóknarleiknum. Það var helst Andri Snær sem lét að sér kveða og hefði hann að ósekju mátt vera meira inná í seinni hálfleik. Aragrúi dauðafæra úr hraðaupphlaupum, línu og hornum fór í vaskinn þar sem Ólafur Gíslason fór á kostum í Valsmarkinu með alls 27 skot varin. Hafþór byrjaði í markinu og tók nokkra bolta í byrjun en síðan lítið meir þannig að Hörður Flóki kom í markið og tók nokkra fína bolta í fyrri hálfleik. Flóki datt síðan niður í seinni hálfleik og átti Hafþór ágæta innkomu í seinni hálfleiknum. Dómarar leiksins áttu mjög dapran dag og var mikið ósamræmi í dómum þeirra þar sem Valsmenn fengu vítaköst á færibandi á meðan sleppt var ítrekað að dæma víti á Valsara. Mörk Akureyrar: Andri Snær 5, Árni 3, Jonni 3, Oddur 3, Goran 2 Hreinn 2, Hafþór 1, Atli 1, Gústaf 1. Sjá gang leiksins Nú verður Akureyri að gyrða sig í brók fyrir næsta leik sem er heimaleikur gegn Fram og verður sá leikur fimmtudaginn 5. febrúar klukkan 19:30. Að loknum leikjum gærdagsins er staðan í deildinni sem hér segir: Nr. Félag Leikir U J T Mörk Hlutfall Stig - 1. Haukar 13 9 0 4 374 : 330 44 18 : 8 2. Valur 13 7 3 3 362 : 309 53 17 : 9 3. FH 13 7 2 4 395 : 379 16 16 : 10 4. Fram 13 7 2 4 362 : 361 1 16 : 10 5. HK 13 5 3 5 344 : 354 -10 13 : 13 6. Akureyri 13 6 0 7 334 : 358 -24 12 : 14 7. Stjarnan 13 2 3 8 324 : 357 -33 7 : 19 8. Víkingur 13 2 1 10 336 : 383 -47 5 : 21
Hér er hægt að skoða nokkrar myndir frá leiknum sem ljósmyndari Handbolti.is tók.
Tengdar fréttir Síðasti leikur liðanna í Höllinni var magnaður29. janúar 2009 - Akureyri handboltafélag skrifarLeikur dagsins: Valur - Akureyri í beinni textalýsingu Þá er komið að leikdegi hjá Akureyri Handboltafélagi. Að þessu sinni halda strákarnir á Hlíðarenda og leika gegn bikarmeisturum Vals í Vodafonehöllinni. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og að sjálfsögðu ætlum við að bjóða stuðningsmönnum sem ekki eiga heimangegnt á leikinn upp á beina lýsingu frá leiknum hér á síðunni og hefst hún rétt fyrir leik. Það er virkilega auðvelt að fylgjast með leiknum í gegnum Beinu Lýsinguna.Smellið hér til að opna Beina Lýsingu Beina Lýsingin opnast í nýjum glugga sem uppfærist sjálfvirkt á 15 sekúndna fresti. Það er því ekkert mál að fylgjast með. Leikurinn hefst eins og fyrr kom fram klukkan 19:30 og við hvetjum alla til að fylgjast vel með.
Til baka Senda á Facebook